Við getum - ég get Arndís Jónsdóttir skrifar 10. júní 2016 07:00 Alþjóðlegur dagur gegn krabbameini er haldinn árlega 4. febrúar. Alþjóðasamtökin gegn krabbameini (UICC) skora nú á þjóðir heims að taka þátt í að vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini undir slagorðunum VIÐ GETUM - ÉG GET. Mikilvægt er að samfélög og einstaklingar leggi sitt af mörkum til að draga úr tíðni krabbameins og áhrifum sjúkdómsins. Fagdeild krabbameinshjúkrunarfræðinga á Íslandi fagnar í ár 20 ára afmæli sínu og fer nú af stað, í samvinnu við Krabbameinsfélag Íslands, með röð greina undir heitinu VIÐ GETUM - ÉG GET. Í þessari grein er áhersla lögð á stuðning við fjölskyldur. Þegar einhver innan fjölskyldu greinist með krabbamein hefur það margs konar áhrif í för með sér, ekki aðeins á hinn krabbameinsveika, heldur einnig á maka hans og fjölskyldu, vini og vinnufélaga. Áhrifin geta verið af ýmsum toga, t.d. líkamleg með breyttri líðan og einkennum af völdum krabbameinsins, sálræn með áhyggjum, depurð og kvíða og félagsleg með breyttum aðstæðum. Krabbameinssjúklingar geta einangrast og þess vegna er félagslegur stuðningur svo mikilvægur. Öll eigum við okkar föstu hlutverk og skyldur í lífinu, sem við sinnum daglega án þess að leiða beinlínis hugann að því. Þegar veikindi koma upp, breytast þessi hlutverk og tengsl einstaklinga geta einnig breyst. Um hríð munu einhverjir í fjölskyldunni þurfa að breyta sínum daglegu háttum og taka að sér einhver af hlutverkum eða skyldum hins veika. Við þessar aðstæður er stuðningur mjög mikilvægur þeim krabbameinsveika og fjölskyldu hans. Það getur stuðlað að öryggi og dregið úr kvíða, létt margvíslegar byrðar sem fylgja veikindunum og auðveldað aðlögun að breyttu lífi og hlutverkum og aukið lífsgæði allra. Stuðningur getur komið víða að, t.d. frá maka eða sambúðaraðila, fjölskyldu, vinum, vinnufélögum, heilbrigðisstarfsfólki og öðrum og stuðninginn má veita með ýmsum hætti. Í sumum tilvikum geta stórfjölskylda, vinir og vinnufélagar myndað mikilvægt stuðningsnet og stuðlað að því með góðum tengslum á veikindatímanum og haft þar með jákvæð áhrif á líðanina. Eðli stuðningsins getur verið mismunandi og í öllum tilvikum getur hann átt þátt í að auðvelda þeim krabbameinsveika og fjölskyldunni aðlögun að margvíslegum breytingum sem fylgja veikindunum. Sumir veita aðstoð við daglegar athafnir, aðrir hafa það hlutverk að veita aðstoð vegna barna á heimili eða í formi dægrastyttingar og enn aðrir veita stuðning úr fjarlægð. Stuðningur á vinnustað frá yfirmönnum og samstarfsfólki er einnig mikilvægur og getur átt þátt í að draga úr kvíða og stuðlað að því að auðveldara verði að snúa aftur til vinnu að loknum veikindum. Fyrir vinnufélaga er mikilvægt að vera vakandi fyrir þörfum og tilfinningum þess krabbameinsveika þegar hann er á vinnustað og halda einnig sambandi við hann þegar hann er frá vinnu. Það getur verið mikilvægt að fá heimild til að aðlaga verkefni og vinnutíma getu hins veika. Óháð þætti þínum í því að styðja hinn krabbameinsveika, þá getur þú verið þess fullviss að stuðningur þinn er mikilvægur honum og öllum sem honum tengjast. VIÐ GETUM – stutt aðra, auðveldað þeim að takast á við krabbameinið og átt þátt í að bæta líðan þeirra og lífsgæði ÉG GET – leitað eftir stuðningi hjá öðrum til að takast á við krabbameinið.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar