Blessað barnalán Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar 1. desember 2016 07:00 Hann er kominn inn á leikskóla!“ Frábærar fréttir sem bárust okkur foreldrunum í tölvupósti einn góðan vordag. Drengurinn fékk pláss og mátti byrja um haustið. Að vísu ekki í leikskólanum sem við kusum helst, en næsti bær við. Svo fengum við síðar flutning. Þvílík kátína. Því á þeim leikskóla er stigsmunur á við aðra sem við höfum reynt í okkar barnauppeldi. Nú er þetta þriðja barnið okkar og við reynslunni ríkari þegar kemur að dagforeldrum og leikskólamálum. Þessi leikskóli nefnilega þekkist hjá okkur sem góði leikskólinn með litla starfsmannaveltu, góðan starfsanda, ríkt þróunarstarf og mikinn eldmóð í starfsfólkinu öllu sem einu. Frábært og faglegt starf í gangi í öllum skúmaskotum, inni og úti og foreldrasamstarfið með besta móti. Glöð mættum við vinum sem voru á umræddum leikskóla með sín börn og tilkynntum að bráðum kæmum við þangað aftur. Mættum kennurum leikskólans og tilkynntum að við kæmum bráðum til þeirra aftur. Hvað við hlökkuðum til. Svo gerðist það. Flutningur afstaðinn. Leikskólinn byrjaður eftir sumarfrí og drengur í aðlögun. Síðan er liðið eitt og hálft ár. Langtíma veikindaleyfi starfsmanna á leikskólanum með litlu starfsmannaveltuna hefur aukist, starfsmannavelta er meiri en við höfum áður þekkt þar á bæ og illa gengur að ráða í lausar stöður. Við höfum verið beðin að sækja drenginn fyrr en áætlað er vegna forfalla starfsmanna og manneklu. Við höfum sótt drenginn okkar í lok dags og eingöngu einn starfsmaður verið eftir á deildinni vegna óvæntra veikinda samstarfsfólks. Við komumst ekki til að sækja hann fyrr þann daginn, eins og við vorum beðin um að gera ef hægt væri í tölvupósti. Ófremdarástand í húsi. Ekkert sem foreldrar leikskólabarna í Reykjavík þekkja ekki til og upplifa daglega. Ekkert sem leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna þekkir ekki til og upplifir daglega. Það kemur á daginn að flottustu stofnanir, eins og uppáhalds leikskólinn okkar, eru ekki ónæmar fyrir samfélagslegum áhrifum. Inn á leikskólana flykkjast nú hvorki menntaðir leikskólakennarar, þroskaþjálfar, iðjuþjálfar né ófaglærðir einstaklingar. Þvert á móti. Í dag flykkjast menntaðir leikskólakennarar, þroskaþjálfar, iðjuþjálfar og ófaglærðir einstaklingar langt í burtu frá leikskólunum. Við getum kennt ýmsu um. Við getum kennt lélegri stjórnun sveitarfélagsins okkar um ástandið. Við getum kennt virðingarleysi gagnvart starfinu sem þarna fer fram um. Við getum kennt allt of lágum launakjörum allra starfsmanna um. Við getum kennt sinnuleysi yfirvalda eiginlega um allt framantalið.Óviðunandi og hættulegt Ástandið í leikskólunum okkar er algjörlega óviðunandi og beinlínis hættulegt. Ég óttast verulega um afdrif barnanna okkar ef núverandi staða fær að vara óáreitt mikið lengur. Börn á viðkvæmum þroskastigum þurfa festu og fagmennsku. Þau þurfa skipulag og ramma og sértæka þjálfun fagfólks. Þau þurfa að mæta skilningi, þekkingu, úrræðum og öryggi. Virðing rekstraraðila leikskólanna gagnvart leikskólabörnum er engin. Þau eru afgangsstærð og dragbítur á Excel-skjölum fjármálaspekúlanta. Þau eru ekki gróðamaskína. Það þarf vitundarvakningu hjá ráðamönnum ekki seinna en fyrir áratug síðan! Hvað er svona flókið við það að skilja að menntun og umönnun barna er það allra mikilvægasta sem þjóðfélagið setur peninga sína í? Skilvirkt menntakerfi er kerfi með aðgang að fjármagni, úrræðum og fagfólki af hverju tagi. Slíkt kerfi skilar af sér heilbrigðum og vinnufærum einstaklingum út í lífið við hinn enda þess. Það hlýtur að segja (borga) sig sjálft! Höfundur er móðir leikskólabarns í Reykjavík, menntaður grunnskólakennari og nemi í mannauðsstjórnun á meistarastigi við Háskóla Íslands.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar