Friðlýsing Kerlingarfjalla komin á skrið í umhverfisráðuneytinu Svavar Hávarðsson skrifar 24. febrúar 2016 07:00 Fjögur svæði í verndarflokki rammaáætlunar eru á svæðinu. Vísir/vilhelm
Undirbúningur að friðlýsingu Kerlingarfjalla er hafinn. Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur sett vinnuna af stað og fundað hefur verið með heimamönnum í Hrunamannahreppi. Í frétt ráðuneytisins kemur fram að skýr vilji af hálfu heimamanna hafi komið fram á undirbúningsfundinum og því virðist ekkert til fyrirstöðu að friðlýsingin geti gengið fljótt fyrir sig. Kerlingarfjöll eru vel afmarkaður fjallaklasi á hálendinu þar sem eru jafnframt fjögur svæði í verndarflokki rammaáætlunar. Kerlingarfjallasvæðið nýtur vaxandi vinsælda fyrir hvers konar útivist. Áður var þar vinsælt skíðasvæði en nú heimsækja gestir svæðið fyrst og fremst til útivistar þar sem víðerni og háhitasvæði eru helsta aðdráttarafl svæðisins. Í Kerlingarfjöllum er jafnframt vaxandi ferðaþjónusta. Við undirbúning að friðlýsingu svæðisins er ætlunin að stuðla að því að starfsemi innan þess verði sem mest sjálfbær. Gert er ráð fyrir að ferðamennska á svæðinu haldi áfram að aukast á komandi árum, en með friðlýsingunni er ætlunin að setja tímanlega reglur og skipulag fyrir svæðið og byggja upp nauðsynlega innviði til verndar náttúrunni, segir í frétt ráðuneytisins. Við undirbúning friðlýsingarinnar verður haft samráð við hagsmunaaðila, m.a. rekstraraðila sem starfa innan þess svæðis sem fyrirhugað er að friðlýsa. Hefur Umhverfisstofnun skipað samstarfshóp með fulltrúum Hrunamannahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Vina Kerlingarfjalla og hefur verið boðað til fyrsta fundar hópsins í vikunni.
Mest lesið Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Innlent Konan sem ekið var á er látin Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Innlent Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Innlent Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Innlent Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Innlent Fleiri fréttir Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Landhelgisgæslan eignast sjálfstýrða kafbáta „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Refsing milduð yfir burðardýri Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Þjófar sendir úr landi Fær bara hálft fæðingarorlof og veik leikskólabörn Björn Dagbjartsson er látinn Hvetja til bólusetningar vegna inflúensufaraldurs Slapp ekki með typpamynd til þrettán ára Halda starfsleyfinu þrátt fyrir kröfur íbúa Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Vill skoða úrsögn úr EES Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Skaftárhlaup enn yfirstandandi Helgi Valberg tekur við ritarastöðunni Stór áfangi Borgarlínu afgreiddur í skipulagsráði og á leið í kynningu Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Kópavogur svarar: Ljósmagnið á skiltinu minnkað og þverun væntanleg Lífsýni úr öðrum manni nýju sönnunargögnin Ljóst að einhverjir dragi lög sín til baka Konan sem ekið var á er látin Styrkirnir ekki auglýstir: Segir Miðflokkinn haldinn hysteríu og ótta við þjóðina Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Trampólín á flugi og vagn á hliðinni Tekist á um fangelsismálin og Útvarpsstjóri ræðir framtíð Söngvakeppninnar Sjá meira