Á þriðjudaginn voru hins vegar nákvæmlega sex ár síðan My Beautiful Dark Twisted Fantasy, fimmta sólóplata Kanye, kom út. Platan hlaut gríðarlega mikið lof gagnrýnenda á sínum tíma, fékk meðal annars 10 af 10 á Pitchfork Media, var í fyrsta sæti á fjöldamörgum listum yfir bestu plötur ársins og vann Grammy-verðlaunin sem besta rappplatan. Hún stökk beint í fyrsta sætið á Billboard-listanum og seldist í milljón eintökum í Bandaríkjunum einum saman.
Það sem er kannski merkilegast við þessa dagsetningu er að Kanye West hóf upptökur á plötunni eftir að hafa flúið til Havaí vegna ofþreytu sem mátti rekja til álags í starfi. Hann hafði að sama skapi hneykslað fólk með framkomu sinni um svipað leyti þar sem hann hafði stokkið upp á svið á MTV Video Music-verðlaununum og hrifsað hljóðnemann af Taylor Swift sem var að taka þar við verðlaunum. Úr varð þessi plata sem verður að teljast með þeim betri sem hafa komið út í sögu rapptónlistar og þó víðar væri leitað. Þemað á henni er að miklu leyti áhrif frægðarinnar á Kanye og hefur hún stundum verið kölluð afsökunarbeiðni hans fyrir þessa erfiðu tíma áður en Herra West stakk af.
Það verður spennandi að sjá hvort þessir erfiðleikar sem Kanye er að ganga í gegnum núna eigi eftir að skila annarri stórkostlegri plötu eins og My Beautiful Dark Twisted Fantasy er svo sannarlega.