Maður fékk brjálæðiskast í strætó og hótaði bæði farþegum og bílstjóra Birgir Örn Steinarsson skrifar 27. júlí 2016 14:10 Farþegar í Leið 2 í morgun urðu óttaslegnir þegar maðurinn brjálaðist. Vísir/Ernir
Strætófarþegi á leið 2 hjá Strætó missti stjórn á sér í morgun, hótaði vagnstjóra og farþegum ef honum yrði ekki hleypt út hið snarasta. Atvikið átti sér stað um klukkan níu í morgun þegar vagninn var á leið niður í bæ eftir Suðurlandsbrautinni. Kristján Kristjánsson var á meðal farþega og greindi hann frá atvikinu á Facebook í dag. Þar segir hann að farþegum hafi blöskrað viðbrögð vagnstjórans jafn mikið og skyndilegt æðiskast farþegans. „Mér fannst að bílstjórinn hefði átt að hleypa honum strax út því hann var greinilega hættulegur,“ segir Kristján. „Hann hótaði bæði bílstjóra og fólki. Hann sagði að bæði bílstjórinn og farþegar myndu sjá eftir því ef hann fengi ekki að fara út. Það voru ekki mjög margir í vagninum en þeir sem voru þar urðu mjög hræddir.“Kastaði gosflösku og skemmdi milliþil Maðurinn kastaði fyrst gosflösku með ofsa í gólfið og vökvinn lak um allt gólf og á veggi. Eftir það öskraði hann á bílstjórann að fyrirskipaði honum að hleypa sér út. Þá var strætisvagninn stopp á ljósum en bílstjórinn ákvað þess í stað að hunsa manninn og keyra áfram að næstu stoppistöð. Við það missti maðurinn sig enn meira og hótaði farþegum og bílstjóra. Því næst snéri hann sér að þili sem hann sparkaði í og skemmdi. Það var ekki fyrr en maðurinn byrjaði að ganga í átt að bílstjóranum sem vagninn stöðvaðist og dyrnar loksins opnuðust. Kristján segist ekki átta almennilega á aðstæðum mannsins. „Hann virkaði ekki drukkinn en það var greinilegt að það voru einhver geðhvörf í gangi. Bílstjórinn bara horfði aftur til hans með einhverjum svip. Það er bara miklu flóknara en það þegar menn fá svona geðhvörf. Þetta var fáfarinn staður og hefði ekki verið neitt mál að setja hann út fyrr.“
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira