Heilbrigðisráðherra veltir upp áhyggjum af byggingu einkasjúkrahúss í Mosfellsbæ Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 27. júlí 2016 13:16 Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra var viðmælandi í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Vísir/Anton Brink „
Það er atvinnufrelsi í landinu og við höfum hér samþykkt alþjóðlega samninga sem gera meðal annars kleift að byggja upp þjónustu á þessu sviði og raunar mörgum öðrum,“ sagði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar var umræðuefnið áætlanir MCPB hf. um að byggja einkasjúkrahús í Mosfellsbæ fyrir erlenda sjúklinga. Hann sagði jafnframt að ef slík uppbygging verði að veruleika verði hún að eiga sér stað í sátt við íslenskt heilbrigðiskerfi, heilbrigðisstarfsfólk og íslenskt samfélag. „Þær fréttir og viðtöl sem af þessu hafa birst frá forsvarsmönnum verkefnisins eru þannig að það veldur manni nokkrum áhyggjum hvernig á að standa að þessu,“ sagði ráðherrann. Aðspurður hvort stjórnvöld geti aðhafst eitthvað í málinu ef stofnunin uppfyllir skilyrði laga og reglugerða um heilbrigðisþjónustu segir ráðherrann að sjálfsagt mál að stjórnvöld komi að málinu ef fagaðilar telji að slík uppbygging geti ógnað innviðum heilbrigðisþjónustunnar. „Það eru atriði sem við þurfum að ræða og munum ræða við fyrsta tækifæri, ég og landlæknir,“ segir ráðherrann.Áhyggjur af misskiptingu í heilbrigðiskerfinu „Það veldur mér vissulega áhyggjum þegar maður heyrir í fyrsta lagi forsvarsmann verkefnisins lýsa því yfir að Íslendingar geti keypt sig þarna inn. Það þýðir að sú staða sé komin upp að efnahagur fólks ráði því hvaða aðgengi það hefur að þessari þjónustu.“ Þá segist Kristján það jafnframt áhyggjuefni að verkefnið sé nálgast með þeim hætti að 50 milljarðar séu lagðir í byggingakosntað og svo verði sótt um leyfi og gengið í skugga um það að unnt sé að fá leyfi fyrir starfseminni. „Þetta tel ég að gangi ekki þegar um er að ræða svona stórt verkefni,“ sagði ráðherrann. Hægt er að hlusta á viðtalið við Kristján Þór í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Erlent Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Erlent Fleiri fréttir Hvetur landsmenn til að sýna kærleika í verki „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Sjá meira