Birtir lista yfir meinta nýrasista Jakob Bjarnar skrifar 27. júlí 2016 13:21 Gunnar Waage fer mikinn á síðu sinni Sandkassanum, og flokkar fólk þar eftir hendinni. Gústaf Níelsson ætlar ekki að taka því þegjandi.
Vefsíðan Sandkassinn, sem nýverið komst í fréttir vegna herferðar gegn Útvarpi Sögu, hefur nú tekið upp á því að birta lista yfir meinta „Íslenska nýrasista“ eins og það er orðað. Einn þeirra sem á listann hefur ratað, Gústaf Níelsson sagnfræðingur, hefur upplýst að hann ætlar að kæra ritstjórann og síðuna vegna hatursummæla í sinn garð. Jón Magnússon lögmaður, sem einnig er á þessum lista, segist sjaldan hafa séð annan eins sóðaskap í íslenskum fjölmiðlum. „Svona vinnubrögðum pólitískra andstæðinga minna mun ég ekki una, heldur kæra háttarlagið til lögreglu, sem kemst ekki undan því að rannsaka tilurð lista af þessu tagi, tilgang hans og leggja mat á hættuna sem fólki kann að vera stofnað í,“ skrifar Gústaf á Facebooksíðu sína. Ritstjóri Sandkassans, Gunnar Waage, segir í orðsendingu á vefnum að þar séu listað það fólk sem „hér eru listaðir þeir menn og konur sem eru áberandi í umræðum á opinberum vettvangi, gegna ábyrgðarstöðum, háir jafnt sem lágir, sem eiga það sameiginlegt að beita sér af mikilli hörku í garð fjölmenningar á Íslandi. Margir þeirra afneita tilvist fjölmenningar hér á landi alfarið.“Fjöldi þekktra Íslendinga á hinum vafasama lista Gunnar fullyrðir að ekki sé nokkur leið að komast á þennan lista fyrir slysni. „Það er ekki nóg að missa einu sinni út úr sér eitthvað og vinna sér inn greininguna nýrasisti. Til þess þarf einbeittan áróður gegn fólki á grundvelli þjóðernis, litarháttar eða uppruna yfir talsvert tímabil. Þeir sem hér eru, eru persónur sem rekið hafa slíkan áróður yfir langt tímabil.“Ýmsir þekktir Íslendingar eru, samkvæmt flokkun Gunnars Waage, íslenskir nýrasistar.Listi Gunnars yfir hina meintu nýrasista er að taka á sig mynd og þar er í fyrsta sæti Páll Vilhjálmsson. Næstur á blaði er Gústaf Níelsson og neðar á lista eru ýmsir þjóðþekktir einstaklingar svo sem Jón Magnússon, Jón Valur Jensson, Davíð Oddsson, Margrét Friðriksdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir og þau Pétur Gunnlaugsson og Arnþrúður Karlsdóttir. Svo einhverjir séu nefndir af þessum 20 manna lista.Vill að nýstofnað embætti um hatursorðræðu láti málið til sín taka Gústaf segir að sig hafi rekið í rogastans þegar hann las á Sandkassanum að hann nyti þessa vafasama heiðurs. Hann telur að þessi listi og slík skrif geti stofnað lífi þeirra sem þar eru í hættu, „enda ganga öfgamúslimar nú ljósum logum um alla Evrópu og drepa fólk ýmist af handahófi eða eftir einhverjum listum.“ Gústaf segist ekki gera ráð fyrir öðru en nýstofnað lögregluembætti um hatursorðræðu muni taka upp rannsókn á málinu að eigin frumkvæði. Vísir hefur reynt að ná í Eyrúnu Eyþórsdóttur, sem stjórnar hinni nýstofnuðu deild um hatursglæpi og hatursorðræðu, en Eyrún er í fríi þessa dagana og er væntanleg til starfa í næsta mánuði. Jón Magnússon lögmaður ætlar heldur ekki að taka þessu þegjandi, ef marka má ummæli á Facebooksíðu hans, þar sem hann segist sjaldan hafa séð annan eins „sóðaskap í íslenskri fjölmiðlun og þetta og svo lengi sem ofangreindir einstaklingar eru listaðir á þessari síðu og taka ekki afstöðu gegn þessum ófögnuði þá ljá þau þegjandi samkomulagi við sóðaskapinn.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira