Catalina fórnarlamb rafbyssuárásarinnar Bjarki Ármannsson skrifar 15. mars 2016 20:31 Ráðist var á Catalinu Mikue Ncogo, eiganda tískuhússins Miss Miss, á heimili hennar í Hafnarfirði í síðasta mánuði, hún beitt ofbeldi í nokkrar klukkustundir og skartgripum í hennar eigu rænt. Vísir/Valli
Ráðist var á Catalinu Mikue Ncogo, eiganda tískuhússins Miss Miss, á heimili hennar í Hafnarfirði í síðasta mánuði, hún beitt ofbeldi í nokkrar klukkustundir og skartgripum í hennar eigu rænt. Greint var frá skartgriparáninu í dag en um er að ræða mál sem fjallað hefur verið um áður á Vísi og hefur leitt til handtöku nokkurra manna. Umfjöllun um árásina hefur vakið athygli en lýsingarnar sem Catalina gaf við skýrslutöku hjá lögreglu er nokkuð óhugnanleg. Segir hún sex menn, fjóra þeirra grímuklædda, hafa ráðist inn á heimili hennar, bundið hana niður og beitt hana ofbeldi í um sex klukkustundir, meðal annars með rafbyssu. Þeir hafi svo haft á brott með sér skartgripina. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa nokkrir menn verið handteknir og látnir sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins. Málið er talið tengjast fimm milljóna króna skuld vegna fíkniefna sem flutt voru hingað til lands í fyrra og lögregla lagði hald á á heimili Catalinu. Catalina segir að mennirnir sex hafi beitt hana ofbeldi í marga klukkutíma og haft á brott með sér skartgripi í eigu hennar.Vísir/Getty Vísir hefur farið yfir atburðarás málsins eins og hún er rakin í greinargerð lögreglunnar, en Catalina sagðist við skýrslutöku hafa borið kennsl á tvo þeirra manna sem réðust á hana. Annar þeirra er erlendur ríkisborgari sem handtekinn var vegna málsins þann 25. febrúar síðastliðinn. Þegar sá maður var úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir rúmri viku kom fram að ekki hefði enn tekist að hafa uppi á hinum manninum sem Catalina segist hafa borið kennsl á. Sá er talinn í felum af ótta við hinn erlenda. DV fjallaði um málið í dag og tók viðtal við Catalinu þar sem hún segist enn hrædd og í áfalli vegna árásarinnar. Segist DV hafa heimildir fyrir því að erlenda ríkisborgaranum hafi verið sleppt úr haldi og hann farinn úr landi. Catalina Ncogo varð þjóðþekkt er hún hlaut dóm fyrir rekstur sinn á vændishúsi við Hverfisgötu og var þá stundum nefnd Miðbaugsmaddaman í fjölmiðlum.
Mál Catalinu Ncogo Tengdar fréttir Erlendur ríkisborgari í einangrun grunaður um aðild að ráni og frelsissviptingu Lögreglan rannsakar nú meint rán og frelsissviptingu á heimili konu sem lýsti því vð skýrslutöku hvernig sex menn hafi ruðst inn til hennar og haldið henni nauðugri þar í sex klukkustundir. 1. mars 2016 17:19 Rán og frelsissvipting í Hafnarfirði: Einn hinna grunuðu í felum af ótta við annan Hafnfirsk kona segir sex menn hafa beitt sig ofbeldi og rænt vegna fíkniefnaskuldar. 8. mars 2016 18:44 Ráðist á Catalinu Mikue Ncogo og hún rænd Catalina leitar nú gimsteina sinna og býður fundarlaun. 15. mars 2016 10:50 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira
Erlendur ríkisborgari í einangrun grunaður um aðild að ráni og frelsissviptingu Lögreglan rannsakar nú meint rán og frelsissviptingu á heimili konu sem lýsti því vð skýrslutöku hvernig sex menn hafi ruðst inn til hennar og haldið henni nauðugri þar í sex klukkustundir. 1. mars 2016 17:19
Rán og frelsissvipting í Hafnarfirði: Einn hinna grunuðu í felum af ótta við annan Hafnfirsk kona segir sex menn hafa beitt sig ofbeldi og rænt vegna fíkniefnaskuldar. 8. mars 2016 18:44
Ráðist á Catalinu Mikue Ncogo og hún rænd Catalina leitar nú gimsteina sinna og býður fundarlaun. 15. mars 2016 10:50