Tangóarnir tvinnast saman við ljóðin Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. febrúar 2016 14:00 Ragnheiður Steindórsdóttir, Edda Þórarinsdóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir, Guðlaug María Bjarnadóttir, Lilja Þórisdóttir, Vilborg Halldórsdóttir, Þórunn Magnea Magnúsdóttir og Helga Björnsson standa að dagskránni í Iðnó að þessu sinni. Vísir/Stefán
Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir ljóðadagskrá í Iðnó tvo næstu daga, sunnudag og mánudag, klukkan 20. Þar verða ljóð Nínu Bjarkar Árnadóttur flutt með tónum tangósveitarinnar Mandólín. Dagskráin nefnist „svo grætur garðurinn laufi“. Þórunn Magnea Magnúsdóttir leikkona er leikstjóri dagskrárinnar. Hún segir hana þriðju stóru ljóðadagskrána sem þær stöllur flytji í Iðnó. „Í þetta sinn erum við með hljómsveit með okkur,“ segir Þórunn. „Tangóhljómsveitin Mandólín spilar tangóa sem tvinnast saman við ljóðin, án þess að við syngjum þau. Tónlistin er eins og áherslupenni sem lyftir undir ljóðin og magnar tilfinninguna.“ Helga Björns hannar búningana. „Í upphafi eru leikkonurnar í svörtum kjólum og svo bæta þær á sig litum þegar líður á. Það er svolítið í anda ljóðanna. Við byrjum á æskunni en svo koma nýir tónar inn í lífið, ástin fer að trufla og eitt og annað.“ Þórunn kveðst hafa kynnst ljóðskáldinu Nínu Björk þegar þær voru fimmtán ára og fylgst með henni eftir það. „Við vorum alltaf í vinfengi,“ undirstrikar hún. Leikhúslistakonurnar sem komnar eru yfir fimmtugt hittast reglulega í Iðnó, hvort sem þær eru að undirbúa viðburð eða ekki. „Það er alltaf hittingur einu sinni í viku og þær mæta sem geta,“ segir Þórunn. „Í hópnum eru leikkonur, sminkur, búningahönnuðir, leikstjórar, leikmyndahönnuðir, sýningarstjórar, leikhúsfræðingar, alls yfir 100 konur. Iðnó er okkar heimili og þar eigum við alltaf skemmtilegar stundir.“
Menning Mest lesið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Terry Reid látinn Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum Menning Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira