Valentínusardagurinn bannaður í ýmsum héruðum Pakistan Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. febrúar 2016 18:56 Mótmælagöngur hafa farið fram gegn deginum. Fáum sögum fer af fjölda mótmælenda. vísir/getty
Forseti Pakistan, Mamnoon Hussain, hefur fordæmt Valentínusardaginn og telur að dagurinn eigi enga tengingu við pakistanska menningu. Hann hefur mælst til þess að fólk sniðgangi daginn. Ummælin lét Hussain falla í kjölfar þess að héraðsstjórn í norðvesturhluta landsins ákvað að banna hátíðarhöld dagsins. Fjallað er um málið af BBC. Leiðtogar strangtrúarðra í landinu hafa einnig mælst til þess að hin „úrkynjaða“ hátíð verði sniðgengin. Valentínusardagurinn er vinsæll í fjölmörgum borgum Pakistan en landið er það sjötta fjölmennasta í heimi með tæplega 200 milljón íbúa. Lögreglumenn í Kohat, í Khyber Pakhtunkhwa héraði, hafa fengið skipanir um að koma í veg fyrir að verslanir selji varning tengdan deginum á borð við kort, blöðrur eða sælgæti. Í Peshawar hafa hátíðarhöld einnig verið bönnuð enda dagurinn talinn „tilgangslaus“. „Valentínusardagurinn hefur engan lagalegan grundvöll í Pakistan. Að auki er dagurinn einnig andstæður trú okkar. Því höfum við ákveðið að banna hann,“ segir héraðsstjóri Kohat í samtali við BBC. Hann bætti því við að það að gefa blóm eða senda kort væri ekki slæmt í sjálfu sér. Það væri það hins vegar í tengslum við þennan dag. Ólíklegt þykir að banninu verði framfylgt af hörku.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Sjá meira