Liðsmenn ISIS flýja sýrlensku borgina Manbij Atli Ísleifsson skrifar 12. ágúst 2016 22:39 Uppreisnarhóparnir sátu um Manbij í 73 daga. Vísir/afp
Uppreisnarhópar Kúrda og araba segjast nú ráða yfir sýrlenska bænum Manbij í norðurhluta Sýrlands eftir að hafa haft betur gegn liðsmönnum ISIS eftir margra vikna umsátur. Uppreisnarhóparnir segja að með því að ná valdi á bænum hafi tekist að stöðva mikilvæga flótta- og birgðaleið liðsmanna ISIS til og frá Evrópu, en uppreisnarhóparnir hafa notið liðsinnis Bandaríkjahers í baráttunni.BBC greinir frá því að uppreisnarhóparnir hafi setið um bæinn og átt þar í átökum við liðsmenn ISIS síðastliðna 73 daga. Segjast uppreisnarhóparnir hafa frelsað um tvö þúsund almenna borgara sem hafi verið notaðir sem mennskir skildir á síðasta degi átakanna. ISIS náði völdum í bænum Manbij, nærri tyrknesku landamærunum, fyrir tveimur árum, en bærinn er mikilvæg samgöngumiðstöð þar sem vegir liggja bæði til höfuðvígis ISIS, Raqqa, og til stórborgarinnar Aleppo þar sem harðir bardagar hafa staðið síðustu vikur og mánuði. Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights staðfesta að fjöldi liðsmanna ISIS hafi flúið borgina. Sést hafi til um fimm hundruð bíla með ISIS-liða og vopnabirgðir um borð, sem hafi verið ekið í norðaustur frá Manbij í átt að bænum Jarablus á tyrknesku landamærunum þar sem ISIS-liðar ráða enn lögum og lofum.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira