Innleiðum Istanbúlsamninginn strax Kristín Ástgeirsdóttir skrifar 2. desember 2016 07:00 Um þessar mundir er verið að sýna kvikmyndina 37 víða um heim. Myndin fjallar um nauðgun og morðið á Kitty Genovese í New York árið 1964. Alls urðu 37 konur og karlar vitni að ofbeldinu en enginn kom konunni til hjálpar. Þessa dagana er líka mikil umræða um kynferðisofbeldi sem drengir í breskum fótboltafélögum voru beittir fyrir um 30 árum. Sjónir beinast einkum að einum geranda en brotaþolarnir eru margir. Þeir sem stigið hafa fram sýna mikið hugrekki með því að segja frá, því það kemur illa heim og saman við ríkjandi karlmennskuhugmyndir að segja slíkar sögur, hvað þá að gráta frammi fyrir sjónvarpsvélunum. Kynferðisofbeldi gegn drengjum þarf að rannsaka og ræða en við megum ekki gleyma því að mun fleiri stúlkur verða fyrir slíku ofbeldi og að sumir hópar kvenna eru í meiri hættu en aðrir, t.d. fatlaðar konur. Á síðasta ári sögðu hundruð kvenna frá nauðgunum sem þær höfðu orðið fyrir á vefsíðunni Beauty tips. Þar velti ísjakinn sér aðeins og sýndi inn í þennan ógnarheim en það má gera því skóna að ótal sögur séu ósagðar.Malla refsilaust Mikil umræða hefur átt sér stað hér á landi undanfarin ár um kynbundið ofbeldi, orsakir og afleiðingar, áhrif á börn sem verða vitni að ofbeldi eða verða fyrir því, gerendur og aðstoð við brotaþola og veitir ekki af. Dæmin tvö sem ég nefndi hér að framan minna okkur á að við erum að glíma við rótgróna ofbeldismenningu sem fengið hefur að malla áfram meira og minna refsilaust. Málin eru mörg sem enn eru grafin djúpt í undirmeðvitundinni. Það sást vel í aðdraganda söfnunarátaks Stígamóta nýverið. Það tók suma yfir 40 ár að glíma við hörmuleg áföll fortíðar og þora að stíga fram. Það er ekki einleikið hve tölum lögreglu ber illa saman við tölur Stígamóta, Aflsins og Kvennaathvarfsins hvað varðar kynbundið ofbeldi. Mál eru ekki kærð og þau sem kærð eru komast fæst í gegnum réttarvörslukerfið. Þetta er þó að breytast hvað varðar ofbeldi í nánum samböndum. Lögreglan í nokkrum lögregluumdæmum hefur tekið upp ný vinnubrögð sem eru að skila miklum árangri við að stöðva ofbeldi inni á heimilum fólks. Enn eiga þó nokkur umdæmi eftir að taka sér tak. Það vakti t.d. athygli að á Fljótsdalshéraði og þar um kring hefur verið slökkt á neyðarsíma félagsþjónustunnar um nokkurt skeið vegna deilna um hver á að borga. Slíkt er auðvitað óþolandi ef ekki lífshættulegt.Fræða þarf dómara Nýlega var greint frá könnun sem sýndi að konur treysta dómstólum landsins mun síður en karlar. Formanni dómarafélagsins fannst þetta illskiljanlegt en ég er ekki í nokkrum vafa um að það eru dómar og sýknanir í kynferðisbrotamálum og heimilisofbeldismálum sem eiga þar stóran hlut að máli. Það þarf að fræða dómara sérstaklega um orsakir og afleiðingar kynbundins ofbeldis. Nú er unnið að tillögum um aðgerðir til að bæta meðferð kynferðisbrotamála í réttarvörslukerfinu. Það er þó eftirfylgnin sem skiptir mestu máli. Hvað hana varðar er mikilvægast að innleiða samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi sem allra fyrst. Þetta er hinn svokallaði Istanbúlsamningur sem kveður á um þær skyldur stjórnvalda að: „vernda konur gegn öllum birtingarmyndum ofbeldis og fyrirbyggja ofbeldi, sækja til saka gerendur og uppræta ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi“. Istanbúlsamningurinn er mikilvægt tæki í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi sem krefst stefnumótunar og hann kostar auðvitað peninga. Kynbundið ofbeldi kostar líka gríðarlegar fjárhæðir, að ekki sé minnst á andlegan og líkamlegan skaða þeirra sem fyrir því verða. Það er mikið verk að vinna hér á landi og eins gott að bretta upp ermar. Hér með skora ég á stjórnvöld að innleiða Istanbúlsamninginn strax. Það væri í anda 16 daga átaks Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Útrýming mannsins á RÚV Vala Hafstað Skoðun Riðið á Bessastöðum? Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Heillandi Halla Hrund Stefán Hilmarsson Skoðun Söngvakeppni og stríðsglæpir Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Skoðun Leikskólakennara á eftirlaunum er ofboðið Ásdís Ólafsdóttir Skoðun Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Já, Katrín Hjálmar Sveinsson Skoðun Forseti allra Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Umræðan um dánaraðstoð Henry Alexander Henrysson Skoðun Að lifa í skugga heilsubrests Svanberg Hreinsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju kýs ég ekki Katrínu Jakobs Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Kjósum sameiningu, ekki sundrungu Jón Ísak Ragnarsson skrifar Skoðun Forseti allra Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Ný nálgun í afreksíþróttum – Nýsköpun Erlingur Jóhannsson skrifar Skoðun Prófsteinninn Katrín Harðardóttir skrifar Skoðun Innrás á Rafah stríðir gegn allri mannúð Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Börnin okkar Hlédís Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vextir geta og þurfa að lækka Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Söngvakeppni og stríðsglæpir Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Leikskólakennara á eftirlaunum er ofboðið Ásdís Ólafsdóttir skrifar Skoðun Óttasleginn mömmuher og Eurovision Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Já, Katrín Hjálmar Sveinsson skrifar Skoðun Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Heillandi Halla Hrund Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Riðið á Bessastöðum? Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Að lifa í skugga heilsubrests Svanberg Hreinsson skrifar Skoðun Umræðan um dánaraðstoð Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Útrýming mannsins á RÚV Vala Hafstað skrifar Skoðun Opið bréf til samgönguráðherra og vegamálastjóra Hópur ferðaþjóna í Dölunum skrifar Skoðun Hugleiðingar ellilífeyrisþega um landsmálin og orkumálin Ingimundur Andrésson skrifar Skoðun Að tilheyra - Fjölmenningarþing Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Katrínu sem forseta Stefán Friðrik Stefánsson skrifar Skoðun Fegin að vera frekar spurð hvaðan ég sé, en „hverra manna ertu“ Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þekking á naloxone nefúða getur bjargað lífi Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Svik forsetaframbjóðanda við börnin á Gaza Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Getum við breytt fortíðinni? Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Á að banna TikTok? Óttar Birgisson skrifar Skoðun Gerum góðan dal enn betri Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Ný norræn stjórnarskrá Hrannar Björn Arnarsson,Ragnheiður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Getum við verið hamingjusöm í vinnunni? Héðinn Sveinbjörnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Fegin að vera frekar spurð hvaðan ég sé, en „hverra manna ertu“ Matthildur Björnsdóttir skrifar