Desemberspá Siggu Kling - Ljónið: Þú munt tjá því fólki sem þú elskar hvað þér finnst um það 2. desember 2016 09:00
Elsku magnaða ljónið mitt. Taktu nú lífinu bara með ró, ekkert vera að hafa skoðun á öllu, leyfðu lífinu að fleyta þér áfram þennan mánuð. Það er búið að vera mikið álag á þér, aðallega í hugsunum. En núna síðustu daga hefur þú fengið aukna bjartsýni og miklu jákvæðari hugsanir. Þessar tilfinningar eru að sýna þér hvað desember getur verið dásamlegur fyrir þig. Það er svo mikilvægt fyrir þig að skipta þér ekki af því sem þú getur ekki breytt, þú þarft að nota æðruleysisbænina (Guð, gef mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli). Þú sýnir miklu meiri kraft, dugnað og skipulag yfir þennan mánuð, og það er þér svo mikilvægt að allt sé í röð og reglu. Þessi sveigjanleiki, sem þú munt sýna fólkinu þínu, mun senda þér miklu meiri hamingju en þig grunar. Það er svo mannlegt að gera stundum mistök, og í raun og veru verður ævisaga manns svo ömurlega leiðinleg, ef hún er fullkomin. Ef þú ert of mikið í þínum þægindahring og hundleiðinlegum venjum, sem valda því að hver dagur er eins og endurtekið efni, þarft þú sjálft að teygja þig eftir breytingum, þær eru tilbúnar að koma og gera líf þitt skemmtilegra. Réttu upp hendurnar, því þær eru loftnetið þitt, og segðu skýrt við veröldina hvað þig langar til að gera. Því að orð eru álög og hugsanir eru afl sem geta breytt lífi þínu. Þú ert að fara inn í mánuð þar sem hjarta þitt hlýnar og kærleikurinn eykst. Þetta er líka ástríðufullur mánuður. Þú munt tjá því fólki sem þú elskar hvað þér finnst um það, en einnig muntu loka á einhverja í kringum þig sem hafa verið að ergja þig í langan tíma. Stundum er ágætt að taka sér frí frá fólki sem er of frekt á mann og getur gert mann hreinlega vitlausan. Þú fyllist meiri trú á þig en oft áður og verður hrókur alls fagnaðar, og átt eftir að heilla svo marga upp úr skónum að þú verður hissa. Þú ert dásamlegur elskhugi, svo að ástin verður í fyrsta sæti yfir þetta tímabil. Ég er ekki viss um að þótt þú sért á lausu hittir þú endilega framtíðarmaka þinn. En þú munt gleyma leiðinlegum samböndum sem eru úr fortíðinni, henda þeim úr hausnum á þér, því að það er ekki pláss fyrir ástargyðjuna eða ástargaurinn ef býr fullt af ástarvitleysingum í höfuðbúinu á þér. Segðu bara því fólki upp leigunni í heilabúi þínu. Þá myndast pláss fyrir ný og betri sambönd. Þú ert svo sterkur og áreiðanlegur persónuleiki og tekur því of illa ef þú stendur þig ekki fullkomlega, hættu að dæma sjálft þig, það gamla er búið og núna er núið og þú átt eftir að standa við þær skuldbindingar sem þú tekst á hendur. Desemberskilaboð þín: Þú getur allt ef þú nennir því.Fræg Ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrirsæta, Gísli Gíslason geimfari, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Albert Eiríks, matgæðingur af bestu sort, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari, Agent Fresco, Ana Mafalda, besta húshjálp í heimi.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Lífið Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum Áskorun Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Fleiri fréttir Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sjá meira