Lækkun hefur ekki áhrif á fæðingarorlofsgreiðslur Sæunn Gísladóttir skrifar 28. júlí 2016 07:00 Gissur Pétursson er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Ef af lækkun tryggingagjaldsins verður mun það ekki hafa áhrif á fæðingarorlofssjóð. „Hin lögbundnu réttindi eru í sjálfu sér annað mál og ef fjármögnun þeirra réttinda verður eitthvað takmörkuð út af þessu verður bara að mæta því með öðrum skatttekjum,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Í umræðunni nú er lækkun tryggingagjalds. Ein af meginforsendum þess að aðilar vinnumarkaðarins skrifuðu undir SALEK-samkomulagið svokallaða var að stjórnvöld gripu til mótvægisaðgerða vegna aukins launakostnaðar. Ein helsta aðgerðin væri að stjórnvöld lækkuðu tryggingagjald. Fæðingarorlofið á Íslandi er fjármagnað með hlutdeild í tryggingagjaldi, en réttindi til greiðslu úr sjóðnum eru tryggð með lögum og fjármögnuð af ríkinu. „Það er eiginlega óskylt mál að lækka tryggingagjaldið. Það að lækka tekjur fæðingarorlofssjóðs þýðir ekki að réttindin verði skert, þá yrði þeim bara mætt með uppbót úr ríkissjóði. Ef sjóðurinn á ekki fyrir sínum útgjöldum innan ársins þá fer hann í skuld við ríkissjóð og svo er það jafnað út með hærri tekjum ef svo er eða að útgjöldin minnka, sem getur verið vegna færri fæðinga eða eitthvað slíkt,“ segir Gissur. „Ef ríkisvaldið tekur ákvörðun um það að lækka tekjur þessa fjárlagaliðar, en réttindi halda áfram óbreytt eða aukast jafnvel, þá þarf að mæta því með annarri fjármögnun úr ríkissjóði.“ Tekjur ríkissjóðs af tryggingagjaldi námu 73,4 milljörðum króna á árinu 2014.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Sjá meira