Segir innanlandsflug vera lífæð við landsbyggðina Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 28. september 2016 11:47 Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir. Myndvinnsla/Garðar
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, segir innanlandsflug vera lífæð við þau byggðarfélög sem eru í mikilli fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona Vinstri grænna segir innanlandsflug mikilvægt til að viðhalda byggð í landinu. Ólína tók til máls undir liðnum Störf þingsins á Alþingi í dag en mikið hefur verið rætt undanfarna daga um há flugfargjöld. Þá var greint frá því í Fréttablaðinu í dag að flugfarþegum í innanlandsflugi hefur fækkað á meðan ferðamönnum fjölgar gríðarlega. „Mér finnst tímabært að stjórnvöld horfist í augu við það að innanlandsflugið er í reynd almenningssamgöngur landsbyggðarinnar, ekki síst í ljósi þess að vegir landsins bera ekki lengur alla þá þungaflutninga og umferð sem fylgir sívaxandi ferðamannastraumi,” sagði Ólína „Hins vegar er staðan sú að innanlandsflugið er allt of dýr ferðakostur til þess að Íslendingar geti nýtt sér það í þeim mæli sem þyrfti. Þess vegna hefur flugfarþegum fækkað í innanlandsflugi um fjórðung á níu árum á sama tíma og ferðamannafjöldinn hefur þrefaldast. Hins vegar er sannleikurinn sá að flugið er lífæðin við þau byggðarlög sem eru í mikilli fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu, Reykjavík er miðstöð stjórnsýslu og mikils hluta þjónustu við landsbyggðina, ekki síst heilbrigðisþjónustu, og greiðar samgöngur þarna á milli verða að vera til staðar.“ Ólína sagði að væri innanlandsflug á viðráðanlegu verði fyrir almenning væri það gjörbylting í búsetumöguleikum fólks á landsbyggðinni og fyrir uppbyggingu almennings. „Það er verðugt verkefni fyrir stjórnvöld, sérstaklega í ljósi þess mikla álags sem er á vegum landsins, að leita leiða til að efla þennan þátt í samgöngum okkar, m.a. með því að hafa áhrif til þess að halda verði flugfargjalda niðri.“Snýst um að viðhalda byggð í landinu Bjarkey tók í sama streng og Ólína og sagðist hafa efasemdir um fyrirætlanir stjórnvalda. „Ég hef haft efasemdir um fyrirætlanir núverandi stjórnvalda sem lögðu þó í það að stofna nefnd um þetta verkefni, þ.e. hvernig hægt væri að lækka gjöld í innanlandsflugi. Það er langt síðan þeirri vinnu var skilað en ekkert hefur gerst. Það kostar í kringum 200 milljónir ef gefinn er eftir virðisaukaskattur af eldsneyti í innanlandsflugi, lægri gjöld á flugvöll og svo framvegis, og þá er hægt að lækka miðaverð, það skiptir máli, um 15–18%.“ sagði Bjarkey. „Það munar um minna í fluginu innan lands eins og það er dýrt. Þetta snýst bæði um það að viðhalda byggð í landinu, hafa tækifæri til að sinna nýsköpun, sinna fjölskyldu og svo framvegis. Það er ýmislegt sem er undir. Ef við viljum raunverulega hafa byggð í öllu landinu þarf flugið að vera valkostur. Það er alveg á hreinu.“
Tengdar fréttir Innanlandsflugið hefur tekið stóra dýfu Flugfarþegum í innanlandsflugi hefur fækkað á meðan ferðamönnum fjölgar gríðarlega. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir skattlagningu á flugið veikja landsbyggðirnar. Væru sérskattar á flug afnumdir myndi verð lækka um 15%. 28. september 2016 07:00 Ívar vill aðgerðir gegn dýrum flugfargjöldum Segir fáránlegt að fólk úti á landi hafi ekki efni á að sækja opinbera þjónustu til Reykjavíkur. 26. september 2016 18:45 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira
Innanlandsflugið hefur tekið stóra dýfu Flugfarþegum í innanlandsflugi hefur fækkað á meðan ferðamönnum fjölgar gríðarlega. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir skattlagningu á flugið veikja landsbyggðirnar. Væru sérskattar á flug afnumdir myndi verð lækka um 15%. 28. september 2016 07:00
Ívar vill aðgerðir gegn dýrum flugfargjöldum Segir fáránlegt að fólk úti á landi hafi ekki efni á að sækja opinbera þjónustu til Reykjavíkur. 26. september 2016 18:45