Segja sjúkraflug liggja niðri „af mannavöldum“ Samúel Karl Ólason skrifar 28. desember 2016 21:01 Sjúkraflug Mýflugs þurfti að fara til Akureyrar með veikan einstakling þar sem Neyðarbrautin svokallaða er lokuð. Vísir/Baldur
Beina þurfti sjúkraflugi frá Hornafirði til Akureyrar þar sem Reykjavíkurvöllur hefur verið ófær í dag. Um var að ræða forgangsflug en Flugmálafélag Íslands segir sjúkraflug liggja niðri af mannavöldum. „Engin sjúkraflugvél gat lent á vellinum þar sem búið er að loka þeirri flugbraut sem nýtist í stormi úr suðvestri og er í daglegu tali nefnd Neyðarbrautin. Brautin er þó enn á sínum stað og í góðu ástandi. Aðeins stjórnmálamenn standa í vegi fyrir lendingum á brautinni,“ segir í ályktun sem stjórn félagsins sendi á fjölmiðla í kvöld. Þar kemur fram að meðlimir stjórnarinnar muni ekki eftir jafn alvarlegri stöðu í flugsamgöngum innanlands og hafi komið fram í dag. „Ljóst er að varnaðarorð flugstjóra og sérfræðinga í flugmálum áttu við full rök að styðjast og að stjórnmálamenn hafa gert alvarleg mistök með því að loka Neyðarbrautinni.“ Félagið kallar eftir því að Neyðarbrautin verði opnuð á ný og segir að það muni ekki kosta ríkissjóð neitt. Alþingi geti tekið ákvörðun um að opna brautina þegar í stað. „Flugmálafélagið hvetur nýtt þing til þess að bregðast við tafarlaust áður en það verður um seinan og án þess að það hafi þá kostað mannslíf.“
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira