Nýjar reglur um Airbnb en enginn með eftirlitið Jóhann Óli Eiðsson skrifar 30. desember 2016 07:00 Lítil pappírsvinna fyrir sýslumenn mun fylgja skráningunni þar sem hún verður á rafrænu formi. vísir/vilhelm
Ekki liggur enn fyrir hvernig eftirliti með skráningu heimagistingar verður háttað. Lagabreyting, oft kennd við Airbnb, tekur gildi um áramótin. Breytingin felur í sér útvíkkun á flokki heimagistingar. Einstaklingar mega leigja fasteign út í heimagistingu í allt að níutíu daga ár hvert án rekstrarleyfis. Tekjur af útleigu mega ekki nema meira en einni milljón króna. Til þess þarf að skrá fasteignina hjá sýslumanni í því umdæmi þar sem fasteignin er. Í kjölfarið fær einstaklingur skráningarnúmer á eignina sem nota þarf í allri markaðssetningu á henni. Verði einstaklingur uppvís að því að brjóta gegn ákvæðum laganna getur hann átt von á sekt allt að einni milljón króna. Fréttablaðið hafði samband við nokkra einstaklinga sem bjóða upp á heimagistingu í gegnum Airbnb.com og kannaði hvort þeir hefðu kynnt sér nýju lögin. Af þeim sem svöruðu höfðu flestir í hyggju að skrá íbúð sína hið fyrsta og nokkrir höfðu nú þegar haft samband við sýslumann til að fá á hreint hvernig best væri að snúa sér í þeim efnum. Drög að reglugerð um gististaði og veitingastaði var birt í nóvember síðastliðnum til umsagnar. Endanleg reglugerð verður ekki birt fyrr en á nýju ári. Samkvæmt drögunum verður umsýsla og eftirlit í höndum Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu en ekki liggur ljóst fyrir hvort, eða þá hvert, það verður fært til annars embættis. Sem stendur er unnið að því að útbúa skráningarform á miðlægu vefsvæði þar sem heimagisting skal skráð. Stefnt er að því að kerfið verði tekið í gagnið á fyrstu vikum nýs árs. Þar verða einnig aðgengileg öll númer skráðra eigna í heimagistingu. Starfsmenn sýslumannsembætta sem Fréttablaðið ræddi við segja ótímabært að ræða hvernig framkvæmd eftirlits með nýju lögunum verður háttað enda óljóst hvaða embætti muni sinna því. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira