Finnskur nýnasisti fær tveggja ára dóm fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða atli ísleifsson skrifar 30. desember 2016 13:35 Jesse Torniainen er liðsmaður í Norrænu andspyrnuhreyfingunni. Vísir/AFP
Dómstóll í Finnlandi dæmdi í dag finnska nýnasistann Jesse Torniainen í tveggja ára fangelsi fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða manns við mótmæli í höfuðborginni Helsinki í september.YLE greinir frá þessu. Torniainen er meðlimur í hinni svokölluðu Norrænu andspyrnuhreyfingu og var dæmdur fyrir grófa líkamsárás. Hann var þó sýknaður af þeim ákærulið sem sneri að því að hann hafi verið valdur að dauða manns. Saksóknarar höfðu krafist milli fimm og hálfs til sex ára fangelsisdóms með vísun í hugmyndafræðilegar ástæður árásarinnar og að Torniainen eigi að baki langan sakaferil. Torniainen réðst að hinum 28 ára Jimi Karttunen við mótmæli nýnasista fyrir utan aðallestarstöðina í Helsinki þann 10. september. Karttunen hafði þá lent upp á kant við nýnasistana sem höfðu verið að dreifa fréttabréfi samtakanna. Á Torniainen að hafa hlaupið á eftir manninum, sparkað í bringu hans svo hann féll um koll og sló höfuðið í stéttina. Karttunen lést nokkrum dögum síðar en blætt hafði inn á heila hans skömmu eftir að hann var úrskrifaður af sjúkrahúsi, þangað sem hann var fluttur eftir að hafa orðið fyrir árásinni.
Tengdar fréttir Finnskur nýnasisti í haldi vegna líkamsárásar sem leiddi til dauða manns Mótmælandinn réðst á manninn með þeim afleiðingum að blæddi inn á heila og hann lést. 19. september 2016 13:56 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira
Finnskur nýnasisti í haldi vegna líkamsárásar sem leiddi til dauða manns Mótmælandinn réðst á manninn með þeim afleiðingum að blæddi inn á heila og hann lést. 19. september 2016 13:56