Samskiptavilla lengir bið eftir leiðréttingu: „Þetta hefðu getað verið síðustu krónurnar mínar“ Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 30. desember 2016 14:51 N1 segir að um mistök sé að ræða Vísir/Vilhelm
Sandra Bryndísardóttir greinir frá því í pistli á Facebook að N1 hafi tekið, í meintu heimildarleysi, 25.000 krónur af debetreikningi hennar þegar hún notaði lykil til að greiða bensín fyrir 5000 krónur í gær. Framkvæmdarstjóri einstaklingssviðs N1 segir að um óalgenga villu sé að ræða og að N1 hafi engan hag af mistökunum.Bent á að tala við bankann Um var að ræða sjálfsafgreiðslustöð N1 í Hæðasmára. Sandra hafði samband við þjónustufulltrúa hjá N1 þar sem hún hélt að um mistök hefði verið að ræða. Að sögn Söndru sagði umræddur þjónustufulltrúi að þetta væri í raun eðlilegt og að hún þyrfti ekki að hafa áhyggjur. Upphæðin myndi leggjast aftur inn á reikning hennar eftir tvo til þrjá daga. Þjónustufulltrúinn hvatti hana til að hafa samband við bankann sinn þar sem bankinn ætti að geta leiðrétt þetta. Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdarstjóri einstaklingssviðs hjá N1, svarar Söndru í færslunni og segir að um mistök sé að ræða og vill koma fram að N1 stundi það ekki að taka út 25.000 krónur til að eiga inn á reikning í nokkra daga. Hún segir að þegar viðskiptavinir fylli á bensín með sjálfsala og greiði með debetkorti þá sé almennt kallað eftir heimild og tékkað á hvort innistaða sé á reikningnum. Þá fari viðskiptin fram og leiðréttingin einnig. Að sögn Guðnýjar á þetta að gerast á nokkrum mínútum og án þess að viðskiptavinur verði var við. Hér hafði því um villu verið að ræða. „Í einhverjum tilfellum gerist það því miður að villur í samskiptum verða til þess að lengri tíma tekur fyrir leiðréttingarskeytið að fara á milli. Sem betur fer gerist það afar sjaldan. Í þeim tilfellum sem það gerist hins vegar getur N1 ekki haft áhrif á málin og er það skýringin á því að þjónustufulltrúi biður þig að hafa samband við bankann þar sem viðskiptabanki viðkomandi getur þá leitað upp færsluna í villuskrá og leiðrétt en N1 hefur ekki aðgang að þeirri skrá,“ segir Guðný.Fær endurgreitt eftir áramót Vísir hafði samband við Söndru sem segist ekki hafa fengið peningana endurgreidda. Þar spili reyndar inn í að hún lokaði sjálf reikningi sínum eftir að hafa deilt reikningsnúmerinu sínu í fyrrnefndri færslu á Facebook sem fleiri hundruð manns hafa deilt. „Ég gerði athugasemd við þessa færslu og vildi fá hana bakfærða en þá er það gert sjálfkrafa eftir sjö daga en bankinn getur gert það handvirkt ef það er óskað eftir því,“ segir hún. Sandra bætir við að hún hefði getað fengið færsluna endurgreidda í dag með því að óska eftir því að það yrði gert handfært. Sandra hafði hins vegar látið loka reikningnum sínum eftir að hafa birt reikningsnúmerið sitt en ekki er hægt að bakfæra fjárhæðina nema inn á sama reikning. Hún segir að svona tilvik séu ekki heppileg sérstaklega ef fólk lendir í þessu sem á ekki mikinn pening. „Þetta hefðu getað verið síðustu krónurnar mínar,“ segir Sandra og bendir á að þetta sé tími þar sem peningaeyðsla sé almennt mikil á meðal fólks og því muni um hverja krónu.Hægt er að lesa færsluna hennar Bryndísar hér að neðan
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira