Hættuleg heimsókn? Þórir Stephensen skrifar 16. desember 2016 07:00 Mikið er nú deilt um, hvort leyfa eigi heimsóknir skólabarna í kirkju á aðventunni. Sagt er, að þar sé stundað trúboð. Ég efast um, að þeir, sem mótmæla hæst og mest, hafi sjálfir komið í slíkar heimsóknir. Ég er fjölmenningarsinni og á þá von, að fólk af mismunandi trúarbrögðum, geti búið hér í sátt og samlyndi. Það er a.m.k. algjör skylda okkar kristinna manna, að sýna bræðrum okkar og systrum sama kærleika og við viljum að þau sýni okkur. Þar skipta trúarbrögð, þjóðerni, litarháttur og kynhneigð engu máli. Við erum öll eitt, börn sama skapara. Í sautján ár tók ég á móti skólabörnum í Dómkirkjunni á aðventu. Ég var þar einn, enginn organisti og enginn kór. Við sungum í upphafi hluta af sálminum í Betlehem er barn oss fætt og svo Heims um ból í lokin. Svo voru jólafrásagnir þeirra Lúkasar og Mattheusar endursagðar og útskýrðar. Mikil áhersla var lögð á kærleiksboðskapinn, sem Kristur var fæddur til að boða og hve nauðsynin væri mikil, að við, bæði börn og fullorðnir, reyndum að vera öllum góð, sérstaklega, þar sem neyð og fátækt ríktu og umfram allt þar sem fólk liði þjáningar vegna styrjalda. Grundvöllur þessa er, að allt þetta fólk er hluti af okkar fjölskyldu. Í þessu fundum við líka uppruna og tilgang jólagjafanna. Svo var kirkjan skoðuð, skírnarfontur Thorvaldsens, eitt fegursta listaverk í íslenskri kirkju. Við töluðum einnig um hina mismunandi hluta kirkjuhússins, kórinn, kirkjuskipið, skrúðhúsið, sem einu sinni var slökkvistöð, turninn og klukkurnar, sem alltaf hringja inn jólin í útvarpinu. Á rúmum hálftíma getur aldrei orðið um neitt trúboð að ræða. Til þess þarf lengra og hnitmiðaðra ferli. Þetta var ekki síst menningarheimsókn, til þess stíluð að gera börnunum auðveldara að skilja jólin og njóta þeirra sem slíkra. Eina bæn leyfði ég mér að fara með. Ég notaði hana mikið í sunnudagaskólanum og bað börnin að sameinast mér í þessum orðum: „Góði faðir, gættu mín, gleddu litlu börnin þín, Gefðu pabba gæfu og traust. Ó, Guð, að mamma verði hraust. Góði Guð að þessu sinni gæt þú vel að farsæld minni.“ Það kemur mér mjög á óvart, ef slík heimsókn hefur haft neikvæð áhrif á fjölmenninguna í landinu. Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Mikið er nú deilt um, hvort leyfa eigi heimsóknir skólabarna í kirkju á aðventunni. Sagt er, að þar sé stundað trúboð. Ég efast um, að þeir, sem mótmæla hæst og mest, hafi sjálfir komið í slíkar heimsóknir. Ég er fjölmenningarsinni og á þá von, að fólk af mismunandi trúarbrögðum, geti búið hér í sátt og samlyndi. Það er a.m.k. algjör skylda okkar kristinna manna, að sýna bræðrum okkar og systrum sama kærleika og við viljum að þau sýni okkur. Þar skipta trúarbrögð, þjóðerni, litarháttur og kynhneigð engu máli. Við erum öll eitt, börn sama skapara. Í sautján ár tók ég á móti skólabörnum í Dómkirkjunni á aðventu. Ég var þar einn, enginn organisti og enginn kór. Við sungum í upphafi hluta af sálminum í Betlehem er barn oss fætt og svo Heims um ból í lokin. Svo voru jólafrásagnir þeirra Lúkasar og Mattheusar endursagðar og útskýrðar. Mikil áhersla var lögð á kærleiksboðskapinn, sem Kristur var fæddur til að boða og hve nauðsynin væri mikil, að við, bæði börn og fullorðnir, reyndum að vera öllum góð, sérstaklega, þar sem neyð og fátækt ríktu og umfram allt þar sem fólk liði þjáningar vegna styrjalda. Grundvöllur þessa er, að allt þetta fólk er hluti af okkar fjölskyldu. Í þessu fundum við líka uppruna og tilgang jólagjafanna. Svo var kirkjan skoðuð, skírnarfontur Thorvaldsens, eitt fegursta listaverk í íslenskri kirkju. Við töluðum einnig um hina mismunandi hluta kirkjuhússins, kórinn, kirkjuskipið, skrúðhúsið, sem einu sinni var slökkvistöð, turninn og klukkurnar, sem alltaf hringja inn jólin í útvarpinu. Á rúmum hálftíma getur aldrei orðið um neitt trúboð að ræða. Til þess þarf lengra og hnitmiðaðra ferli. Þetta var ekki síst menningarheimsókn, til þess stíluð að gera börnunum auðveldara að skilja jólin og njóta þeirra sem slíkra. Eina bæn leyfði ég mér að fara með. Ég notaði hana mikið í sunnudagaskólanum og bað börnin að sameinast mér í þessum orðum: „Góði faðir, gættu mín, gleddu litlu börnin þín, Gefðu pabba gæfu og traust. Ó, Guð, að mamma verði hraust. Góði Guð að þessu sinni gæt þú vel að farsæld minni.“ Það kemur mér mjög á óvart, ef slík heimsókn hefur haft neikvæð áhrif á fjölmenninguna í landinu. Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun