Þiggjum með þökk Orri Hauksson skrifar 22. nóvember 2016 07:00 Tíma lesenda Fréttablaðsins er ekki vel varið í að lesa langdregið orðaskak okkar Erlings Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Gagnaveitu Reykjavíkur. Ítrekuð ónot GR í garð Símasamstæðunnar hafa verið talin ólögmæt af yfirvöldum neytendamála og verður þetta opinbera fyrirtæki nú vísast talið brotlegt enn á ný fyrir furðulegan atvinnuróg í okkar garð. Hið fréttnæma er hins vegar, að sl. laugardag kom eitt afar jákvætt fram í máli forsvarsmanns GR, sem vonandi var ekki óviljandi. Þar setti framkvæmdastjórinn nefnilega fram þá stefnumótandi yfirlýsingu að allir eigi að geta „notað grunninnviði frá hverjum sem er“. Þannig vinnur einmitt Míla, dótturfélag Símans, en afstaða GR hefur verið önnur hingað til. Það er því kominn tími til að upplýsa lesendur sem enn fylgjast með að Símasamstæðan hefur um langa hríð reynt að kaupa aðgang að grunninnviðum Gagnaveitu Reykjavíkur, til að veita viðskiptavinum sínum þjónustu um, en án árangurs. Skattgreiðendur og orkunotendur á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarin fimmtán ár verið látnir fjármagna tugmilljarða fjarskiptakerfi, sem nú liggja inni í GR. Því hefur okkur, sem höfum þann starfa að veita íslenskum heimilum og fyrirtækjum fjarskiptaþjónustu, komið á óvart að GR hefur þráfaldlega neitað að selja Símasamstæðunni aðgang að þessum sameiginlegu innviðum, nema gegn þeim afarkostum að keypt séu geypidýr óþarfa atriði í leiðinni, sem hvorki nýtast Símasamstæðunni né viðskiptavinum okkar. Míla er reglustýrt heildsölufyrirtæki í fjarskiptum, sem selur öllum fjarskiptafélögum margháttaðan aðgang að kerfum sínum um allt land. Fara þau viðskipti fram undir vökulu opinberu eftirliti, sem er afdráttarlausara en þekkist í öðrum löndum. GR, á hinn bóginn, sinnir nær eingöngu hinu arðbæra höfuðborgarsvæði og hefur fram til þessa setið beggja vegna borðs, verið bæði heildsali og smásali, í margháttuðum hagsmunaárekstrum við viðskiptavini sína. GR lýtur ekki sömu reglustýringu og Míla, heldur rekur GR lokað kerfi sem útilokar eðlilegan aðgang, en hefur nú samt óskað eftir aðstoð yfirvalda til að ná til sín afþreyingarefni Símans, án eðlilegra viðskiptasamninga við rétthafa efnisins. Til lengri tíma skiptir þessi skrýtna staða reyndar ekki öllu, þar sem Míla mun á næstu tveimur árum ljúka við að uppfæra innviði sína og ljósleiðarakerfi á höfuðborgarsvæðinu, með afar ódýrum og umhverfisvænum hætti. Þeir sem hafa áhuga á góðri nýtingu opinberra aðfanga og að umhverfisgæðum sé ekki sóað í tilgangsleysi, hljóta enn fremur að fagna afgerandi yfirlýsingu framkvæmdastjóra GR nú um helgina, um að allir eigi að geta „notað grunninnviði frá hverjum sem er“. Ég geri því ráð fyrir fundi á næstu dögum á til að ganga frá samningum um aðgang Símasamstæðunnar að innviðum GR.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Kjarni máls Eftir talsvert tilhlaup, þar sem hann endurnýtti eldgamlar rangfærslur um fjárhag Gagnaveitu Reykjavíkur, tókst forstjóra Símans að komast að kjarna málsins í grein hér í blaðinu 17. nóvember. Gagnaveita Reykjavíkur fagnar allri samkeppni og ánægjulegt að sjá Símann gangast að því að ljósleiðari alla leið sé loksins þeirra framtíðarkerfi. 19. nóvember 2016 07:00 Heilbrigð samkeppni Um aldamótin síðustu var ástandið í fjarskiptum í höfuðborginni þannig að það stóð þróun skólastarfs og atvinnurekstri fyrir þrifum. Gagnaflutningur hjá Landsímanum, sem nú er Síminn og Míla, var svo okurdýr að erfitt var að taka upp nýja kennsluhætti og forneskja í gagnaflutningum hindraði þróun atvinnu- og viðskiptahátta. 16. nóvember 2016 07:00 Skemmtum okkur saman en ekki hvert á kostnað annars Ótti við aukna samkeppni einkennir skrif Erlings Freys Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Gagnaveitu Reykjavíkur (GR), í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær, 16. nóvember. Erling gerir tilkall til sjónvarpsefnis Símans með valdboði en ekki viðskiptum. 17. nóvember 2016 07:00 Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Tíma lesenda Fréttablaðsins er ekki vel varið í að lesa langdregið orðaskak okkar Erlings Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Gagnaveitu Reykjavíkur. Ítrekuð ónot GR í garð Símasamstæðunnar hafa verið talin ólögmæt af yfirvöldum neytendamála og verður þetta opinbera fyrirtæki nú vísast talið brotlegt enn á ný fyrir furðulegan atvinnuróg í okkar garð. Hið fréttnæma er hins vegar, að sl. laugardag kom eitt afar jákvætt fram í máli forsvarsmanns GR, sem vonandi var ekki óviljandi. Þar setti framkvæmdastjórinn nefnilega fram þá stefnumótandi yfirlýsingu að allir eigi að geta „notað grunninnviði frá hverjum sem er“. Þannig vinnur einmitt Míla, dótturfélag Símans, en afstaða GR hefur verið önnur hingað til. Það er því kominn tími til að upplýsa lesendur sem enn fylgjast með að Símasamstæðan hefur um langa hríð reynt að kaupa aðgang að grunninnviðum Gagnaveitu Reykjavíkur, til að veita viðskiptavinum sínum þjónustu um, en án árangurs. Skattgreiðendur og orkunotendur á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarin fimmtán ár verið látnir fjármagna tugmilljarða fjarskiptakerfi, sem nú liggja inni í GR. Því hefur okkur, sem höfum þann starfa að veita íslenskum heimilum og fyrirtækjum fjarskiptaþjónustu, komið á óvart að GR hefur þráfaldlega neitað að selja Símasamstæðunni aðgang að þessum sameiginlegu innviðum, nema gegn þeim afarkostum að keypt séu geypidýr óþarfa atriði í leiðinni, sem hvorki nýtast Símasamstæðunni né viðskiptavinum okkar. Míla er reglustýrt heildsölufyrirtæki í fjarskiptum, sem selur öllum fjarskiptafélögum margháttaðan aðgang að kerfum sínum um allt land. Fara þau viðskipti fram undir vökulu opinberu eftirliti, sem er afdráttarlausara en þekkist í öðrum löndum. GR, á hinn bóginn, sinnir nær eingöngu hinu arðbæra höfuðborgarsvæði og hefur fram til þessa setið beggja vegna borðs, verið bæði heildsali og smásali, í margháttuðum hagsmunaárekstrum við viðskiptavini sína. GR lýtur ekki sömu reglustýringu og Míla, heldur rekur GR lokað kerfi sem útilokar eðlilegan aðgang, en hefur nú samt óskað eftir aðstoð yfirvalda til að ná til sín afþreyingarefni Símans, án eðlilegra viðskiptasamninga við rétthafa efnisins. Til lengri tíma skiptir þessi skrýtna staða reyndar ekki öllu, þar sem Míla mun á næstu tveimur árum ljúka við að uppfæra innviði sína og ljósleiðarakerfi á höfuðborgarsvæðinu, með afar ódýrum og umhverfisvænum hætti. Þeir sem hafa áhuga á góðri nýtingu opinberra aðfanga og að umhverfisgæðum sé ekki sóað í tilgangsleysi, hljóta enn fremur að fagna afgerandi yfirlýsingu framkvæmdastjóra GR nú um helgina, um að allir eigi að geta „notað grunninnviði frá hverjum sem er“. Ég geri því ráð fyrir fundi á næstu dögum á til að ganga frá samningum um aðgang Símasamstæðunnar að innviðum GR.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Kjarni máls Eftir talsvert tilhlaup, þar sem hann endurnýtti eldgamlar rangfærslur um fjárhag Gagnaveitu Reykjavíkur, tókst forstjóra Símans að komast að kjarna málsins í grein hér í blaðinu 17. nóvember. Gagnaveita Reykjavíkur fagnar allri samkeppni og ánægjulegt að sjá Símann gangast að því að ljósleiðari alla leið sé loksins þeirra framtíðarkerfi. 19. nóvember 2016 07:00
Heilbrigð samkeppni Um aldamótin síðustu var ástandið í fjarskiptum í höfuðborginni þannig að það stóð þróun skólastarfs og atvinnurekstri fyrir þrifum. Gagnaflutningur hjá Landsímanum, sem nú er Síminn og Míla, var svo okurdýr að erfitt var að taka upp nýja kennsluhætti og forneskja í gagnaflutningum hindraði þróun atvinnu- og viðskiptahátta. 16. nóvember 2016 07:00
Skemmtum okkur saman en ekki hvert á kostnað annars Ótti við aukna samkeppni einkennir skrif Erlings Freys Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Gagnaveitu Reykjavíkur (GR), í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær, 16. nóvember. Erling gerir tilkall til sjónvarpsefnis Símans með valdboði en ekki viðskiptum. 17. nóvember 2016 07:00
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun