Viðskipti innlent

Svartur föstudagur kominn til með að vera á Íslandi

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Vel á annað hundrað manns voru í röð utan við verslun Elko í Lindum rétt fyrir klukkan átta í morgun.
Vel á annað hundrað manns voru í röð utan við verslun Elko í Lindum rétt fyrir klukkan átta í morgun. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að engan hafi órað fyrir því hversu hratt verslun á Svörtum föstudegi hefur aukist. Fjölmargir nýttu sér tilboð verslana í dag. Markaðsráðgjafi segir Svartan föstudag kominn til að vera.

Mikil stemmning var í Bandaríkjunum í nótt þegar verslanir opnuðu utan hefðbundins opnunartíma með tilboð á vörum sem erfitt er að hafna. Löngum hefur þessi dagur þar ytra verið einn sá besti í kaupum á raftækjum en verslunin í Bandaríkjunum gerði ráð fyrir að 137 milljónir manna myndu nýta daginn til verslunar. 

„Black Friday“ eða Svartur föstudagur á rætur sínar að rekja aftur til ársins 1932 og markar upphafið að jólaverslun í Bandaríkjunum. Dagurinn hefur verið að sækja í sig veðrið hér á landi en eins og sjá má í dagblöðum, á netinu, í sjónvarpi og í útvarpi í dag, þá virðist þessi dagur vera búinn að festa sig í sessi hér á landi. 

„Við sjáum þetta bara vaxa með hverju árinu og við sjáum það greinilega núna þegar maður skoðar blöðin bara í dag og allar auglýsingarnar. Þetta er málið í dag,“ sagði Guðmundur Pálsson, markaðsráðgjafi hjá Pipar/TBWA.

Raftækjaverslunin Elko hefur á undanförnum árum byggt upp stemmningu fyrir þessum degi og fyrir opnun í morgun voru á annað hundrað manns í röð fyrir utan verslunina í Lindum í Kópavogi þar sem fólk ætlaði að tryggja sér raftæki og fleira á góðu verði.

„Hvað gerir maður ekki fyrir barnabörnin sín? Þetta eru jólagjafirnar. Það er ekkert annað,“ sagði Guðbjörg Hinriksdóttir utan við verslun Elko í morgun.

Hvað finnst þér um þessa hefð og að hún sé að koma til Íslands?

„Bara fínt sko! Maður getur keypt aðeins ódýrara,“ sagði Vigdís Björk Ásgeirsdóttir einnig í morgun.

Fréttastofan ræddi við fjölmargar verslanir í dag og voru þær allar sammála um að þessi dagur hafi aldrei verið jafn stór  á Íslandi og í ár.

„Þetta er gott, bæði fyrir neytendur og verslunareigendur. Þannig að afhverju ekki,“ segir Guðmundur.

Dagblöð dagsins voru yfirfull af auglýsingum í dag og það vakti talsverða athygli að auglýsendur nýttu enska heitið „Black Friday“ en ekki „Svartur föstudagur“ í sínum auglýsingum.

„Þetta er eitthvað sem við erum að prufa okkur áfram með greinilega en mér sýnist „Svartur föstudagur“ vera að ná yfirhöndinni,“ segir Guðmundur.

Framkvæmdastjóri Samtaka  verslunar og þjónustu segir það koma á óvart hversu hratt þessi verslunardagur hefur vaxið.

„Þetta er miklu meira held ég en nokkur átti von á. Við höfum fengið svona sýnishorn af þessu undanfarin tvö ár en það er alveg greinilegt að þetta kemur með trukki og dýfu inn á markaðinn núna. Þetta hlýtur að hafa einhver áhrif á verslunina svona í þessum jólamánuði. Væntanlega mun þetta hafa þau áhrif að hún dreifist meira,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.

Andrés segir að ef fram sem horfir má gera ráð fyrir því að dagurinn í dag verði einn stærsti verslunardagur ársins.

„Ég er alveg viss um það að þetta verður stærra á næsta ári og síðan verður bara spennandi að sjá hvað „Cyper Monday“, hvernig hann verður á mánudaginn,“ segir Guðmundur.

Bæði Guðmundur og Andrés eru sammála um að Svartur föstudagur sé kominn til með að vera hér á landi.

 


Tengdar fréttir

Tískukaup á svörtum föstudegi

Hin bandaríska hefð fyrir einum útsöludegi rétt fyrir jólin er að teygja anga sína hingað og Glamour kannaði hvar verður hægt að gera góð tískukaup á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×