Glamour

Tískukaup á svörtum föstudegi

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Hin bandaríska útsöluhefð sem flestir þekkja sem Black friday, eða svartur föstudagur, hefur nú teygt anga sína yfir hafið til okkar en hún gengur út á það að verslanir eru með einn útsöludag daginn eftir Þakkargjörðahátíðina sem er einmitt í kvöld í Bandaríkjunum. 

Það er yfirleitt vel þegið að fá einn afsláttardag svona rétt fyrir hátíðirnar þar sem innkaupalistinn er í lengri kantinum og fögnum við því að íslenskar verslanir eru að taka við sér í þessum málum líka. 

Samkvæmt heimildum Glamour munu þó nokkrar tískuvöruverslanir taka þátt í gleðinni og því tilvalið að kíkja í búðir á morgun og gera góð kaup. Hér fyrir neðan má sjá smá upptalningu af þeim sem við vitum um að ætla að bjóða upp á afsláttardag í tískugeiranum.



Verslunin Zara ætlar að bjóða upp á 30 prósent afslátt af öllum yfirhöfnum, kjólum, gallabuxum, bolum og skóm í dömudeild, yfirhöfnum, buxum, peysum og leggings í barnadeild en þar er einnig 20 prósent afsláttur af skóm. Herradeildin er svo með 30 prósent af yfirhöfnum, skyrtum, peysum og skóm. 

Verslanir NTC  ætla að bjóða upp á 20 prósent afslátt af öllum vörum nema í Kúltúr og Eva þar sem verður 15 prósent afsláttur. 

Þá munu verslanir Bestseller, Vila, Vero Moda, Jack and Jones, Selected og  Name It einnig taka þátt í gleðinni og vera með girnileg tilboð. 

Skór.isKaupfélagið, Skechers, Steinar Waage, Ecco og Air í Smáralind eru með 20 prósent af öllum vörum á morgun sem vert er að kíkja á. 

Góða skemmtun en passið ykkur að láta kaupgleðina ekki fara alveg með ykkur eins og vinir okkar Vestanhafs sem má sjá á þessu myndbandi frá svörtum föstudegi fyrir nokkrum árum. 






×