Kyrrsetan er hinar „nýju reykingar“ Svavar Hávarðsson skrifar 17. nóvember 2016 07:00 Kyrrseta er hinar ,,nýju reykingar“ vestræns lífsstíls og eru sjálfstæðir áhættuþættir kransæðasjúkdóms og geta tengst öðrum áhættuþáttum eins og offitu og sykursýki tvö. Að snúa því við getur verið spurning um líf eða dauða. vísir/stefán
Ástæða er til að beita forvörnum gegn vaxandi offitu og tengdum vandamálum með áþekkum hætti og lengi var gert gegn tóbaksreykingum. Offita er einn af sterkustu áhættuþáttum kransæðasjúkdóms, en hún er hratt vaxandi vandamál á Íslandi, ekki síst hjá börnum sem eru á meðal þeirra feitustu í Evrópu. Ef ekki verður spornað við þessari þróun er hætt við að algengi og dánartíðni vegna kransæðastíflu muni aftur aukast á Íslandi. Þetta segir Karl Andersen, prófessor í hjartalækningum og yfirlæknir á Hjartagátt Landspítalans, en hann er einn höfunda Kransæðabókarinnar – rits sem 30 íslenskir sérfræðingar standa að og er ætlað almenningi ekki síður en heilbrigðisstarfsfólki.Dánartíðni vegna kransæðastíflu hefur snarlækkað á síðustu áratugum og í dag lifa langflestir af hjartadrep. Það má þakka bættri greiningu og meðferð; öflugri lyfjameðferð og framförum í kransæðavíkkunum og hjáveituaðgerðum. Öflugar forvarnir hafa þó skipt enn meira máli; breytt mataræði, öflug meðferð háþrýstings og hækkaðs kólesteróls og árangursríkar reykingavarnir. Aðeins ellefu prósent fullorðinna Íslendinga reykja í dag samanborið við 30 prósent árið 1991, en aðeins Svíar geta státað af lægra hlutfalli reykingamanna.„Gríðarlegur árangur hefur náðst. En við höfum áhyggjur af vandamálum sem sér ekki fyrir endann á og það eru offita og sykursýki, sem má segja að sé afleiðing offitu og neysluháttum okkar í dag. Nú þarf að einbeita sér að þessum atriðum með sömu alvöru og við höfum gert varðandi reykingar,“ segir Karl og bætir við að Íslendingar hafi verið einna fyrstir til að banna auglýsingar á tóbaki sem var ekki sjálfsagt mál á þeim tíma. Í kjölfarið var gripið til lýðheilsuinngripa eins og að hætta sölu tóbaks við kassann þar sem það var sýnilegt og banna yngsta aldurshópnum að kaupa tóbak. Síðar komu aðgerðir eins og að banna reykingar í opinberum byggingum, á veitingastöðum og svo framvegis. Varla sé þess svo að bíða að umbúðir verði gerðar einsleitar til að þær höfði síður til barna og unglinga. „Við verðum að taka matvæli, matvælaframleiðendur, sömu tökum og við höfum nálgast tóbaksiðnaðinn á síðustu áratugum. Nefna má saltneyslu sem dæmi, en þar neytum við kannski þrisvar sinnum meira magns en líffræðileg þörf okkar segir til um. Þetta gerist ekki þegar við kryddum matinn okkar sjálf, heldur er stærsti hlutinn kominn frá tilbúnum matvælum hvers konar. Þessi saltaustur er tilkominn vegna þess að þessar vörur seljast frekar,“ segir Karl, sem telur að það sama eigi við um sykur, en þar hafa mikið verið til umræðu sykraðir drykkir, skyndibiti og mjólkurvörur sem beint er að börnum. Sykurmagnið í þessum mat, og fleiri vörutegundum, hefur ekkert með næringarinnihald að gera, og viðheldur vítahring sem sannarlega er til staðar hjá milljónum manna. Ísland er þar engin undantekning. Börn eru allt of þung sem oft leggur línuna fyrir fullorðinsárin með tilheyrandi heilsuvandamálum. Þegar sýnir alþjóðleg tölfræði heilbrigðisyfirvalda að rúmlega sautján milljón dauðsföll í heiminum árlega eru rakin til hjarta- og æðasjúkdóma. Árið 2030 verður þessi tala komin vel yfir 23 milljónir á ári. Flest þessara dauðsfalla verða í fátækari löndum heims, enda þótt sjúkdómurinn sé hlutfallslega algengari dánarorsök í ríkari löndum heims. Þá er vert að hafa hugfast að áhættuþættir kransæðasjúkdóms geta verið óbreytanlegir, eins og aldur, kyn og ættarsaga. En hinir, sem margir tengjast lífsstíl, eru fleiri og þeir helstu reykingar, háþrýstingur, blóðfituröskun, sykursýki, offita, hreyfingarleysi, kæfisvefn, sálrænir og félagslegir þættir, mataræði og áfengi. „Við gátum lengi státað okkur af því hér að hafa lága tíðni sykursýki – en það heyrir sögunni til. Við erum komin upp að hlið annarra þjóða og jafnvel fram úr þeim sumum. Helsta skýringin er það mataræði sem við höfum tamið okkur; skyndibiti og óhollusta,“ segir Karl og segir að einna sárast sé að sjá að þrátt fyrir að allir þessir þættir hafi verið greindir, og vitneskjan liggi fyrir, þá breyti fólk ekki daglegum venjum sínum í samræmi við það.Hjartað dælir tíu þúsund lítrum á sólarhring„Við verðum því að hafa þetta í huga í okkar forvörnum í dag – ég held að reykingar séu að deyja út og við ættum að einbeita okkur að matvælunum í auknum mæli,“ segir Karl og nefnir í samhengi álögur á grænmeti og ávexti á sama tíma og sykurskattur var afnuminn nýlega. „En þetta er á ábyrgð foreldra, skólanna, íþróttafélaganna, fyrirtækja, ríkisins og sveitarfélaganna – en miklum árangri er hægt að ná með ákvörðunum í skipulagsmálum eins og góðir hjólastígar eru ágætis dæmi um. Það þurfa allir að taka þátt – hver með sínum hætti – til að ná árangri,“ segir Karl.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Erlent Fær þyngri dóm fyrir að nauðga konu, taka það upp og senda henni Innlent Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Erlent Ákærður fyrir að ráðast á leigubílstjóra Innlent Svona verður Sæbraut í stokki Innlent Einn lést í brunanum á Hjarðarhaga Innlent Græddu á hjólinu í fyrra og vilja endurtaka leikinn Innlent Súkkulaði sviðakjammar rjúka út á Selfossi Innlent Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Innlent Hjalti Snær sá sem fannst látinn Innlent Fleiri fréttir Græddu á hjólinu í fyrra og vilja endurtaka leikinn Svona verður Sæbraut í stokki Súkkulaði sviðakjammar rjúka út á Selfossi Fær þyngri dóm fyrir að nauðga konu, taka það upp og senda henni Margt sem hægt sé að læra af Svíum í baráttunni gegn mansali Mál hættulegra fyrrverandi fanga endi alltaf eins Þjónusta hjálparsímans tryggð Mannskæður eldsvoði, garður ofan á Sæbraut og sviðakjammakaka Ákærður fyrir að ráðast á leigubílstjóra Grímur sjálfkjörinn í sæti Ingvars Tæp tvö þúsund ný leikskólapláss í Reykjavík á næstu fimm árum Einn lést í brunanum á Hjarðarhaga Alvarlega særður en ekki í lífshættu eftir árás í Úlfarsárdal Blanda af „Mikka mús og íþróttaálfinum“ ógni lýðheilsu Sakar Guðrúnu um sjúklega þráhyggju Stokkur fjarlægi gjána sem skilji að Vogahverfin Hættir að taka krókinn um Háaleitisbraut og Miklubraut Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars Fjórtán ára piltur grunaður um að leggja hníf að hálsi annars við Hvaleyrarvatn „Þar sem vændi þrífst þar þrífst líka mansal“ Útburður manns úr Bríetartúni dreginn til baka Mjög alvarlegt tilfelli Viðbúnaður í Vesturbæ og nikótínumræður á Alþingi Guðrún segir ríkisstjórnina slá skjaldborg um Flokk fólksins Skera niður til að mæta launahækkunum Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Fjölga ferðum og auka tíðni ákveðinna leiða Strætó í haust Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Bein útsending: Afmælisráðstefna Afstöðu Kynntu fyrirhugaðan Sæbrautarstokk Sjá meira