Tvískinnungur Gunnlaugur Stefánsson skrifar 17. nóvember 2016 07:00 Ekkert ógnar fremur heimsfriði um þessar mundir en blóðug valdabarátta múhameðstrúarmanna. Örsnautt alþýðufólk af stríðshrjáðum svæðum neyðist til að flýja heimili sín og hrópar á hjálp. Þá beinast augu að kristnum þjóðum, sem hafa virðingu við mannhelgi að kjölfestu, að taka á móti flóttafólkinu. Engum fréttum fer af því, að efnuðustu þjóðir heims í Miðausturlöndum bjóði stríðshrjáð trúsystkini sín velkomin í griðaskjól. En á Íslandi heyja háværar raddir baráttu um að úthýsa kristnum trúaráhrifum og banna börnum í skólanum að rækta kristna trú sem boðar kærleika og mannvirðingu. Þó er krossinn í þjóðfánanum, kristið bænamálið í þjóðsöngnum og dagatalið helgað ævi og boðskap Jesú Krists. Þetta hafa verið hornsteinar velferðar og menningar. Í reykvískum skólum er svo efast um að þiggja boð að koma í kirkjuna á aðventunni til að fræðast um siðinn. Aftur á móti þótti hið besta mál að ríkið færi í útrás á Ítalíu með ærnum tilkostnaði í nafni tvíærings til að boða þar múhameðstrú, að sögn fölmiðla með himnesku helgihaldi, í mosku sem búin var til í afhelgaðri kirkju. Það hefði verið snöggtum frumlegra að fara til Sádi-Arabíu og setja þar upp kristna kirkju í mosku, en hefði líklega útheimt kjark og því þægilegast að njóta hins kristna umburðarlyndis á meðan það er enn í boði.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Ekkert ógnar fremur heimsfriði um þessar mundir en blóðug valdabarátta múhameðstrúarmanna. Örsnautt alþýðufólk af stríðshrjáðum svæðum neyðist til að flýja heimili sín og hrópar á hjálp. Þá beinast augu að kristnum þjóðum, sem hafa virðingu við mannhelgi að kjölfestu, að taka á móti flóttafólkinu. Engum fréttum fer af því, að efnuðustu þjóðir heims í Miðausturlöndum bjóði stríðshrjáð trúsystkini sín velkomin í griðaskjól. En á Íslandi heyja háværar raddir baráttu um að úthýsa kristnum trúaráhrifum og banna börnum í skólanum að rækta kristna trú sem boðar kærleika og mannvirðingu. Þó er krossinn í þjóðfánanum, kristið bænamálið í þjóðsöngnum og dagatalið helgað ævi og boðskap Jesú Krists. Þetta hafa verið hornsteinar velferðar og menningar. Í reykvískum skólum er svo efast um að þiggja boð að koma í kirkjuna á aðventunni til að fræðast um siðinn. Aftur á móti þótti hið besta mál að ríkið færi í útrás á Ítalíu með ærnum tilkostnaði í nafni tvíærings til að boða þar múhameðstrú, að sögn fölmiðla með himnesku helgihaldi, í mosku sem búin var til í afhelgaðri kirkju. Það hefði verið snöggtum frumlegra að fara til Sádi-Arabíu og setja þar upp kristna kirkju í mosku, en hefði líklega útheimt kjark og því þægilegast að njóta hins kristna umburðarlyndis á meðan það er enn í boði.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar