Ætti núna að eiga nóg fyrir sautján systkini sín Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2016 15:00 Steven Adams. Vísir/Getty
Steven Adams, miðherji Oklahoma City Thunder, er búinn að framlengja samning sinn við félagið og þarf ekki mikið að kvarta yfir launaseðlinum sínum næstu fjögur árin. Oklahoma City Thunder mun borga honum hundrað milljónir dollara á næstu fjórum árum eða 11,2 milljarða íslenskra króna. Hinn 23 ára gamli Steven Adams hefur spilað með Oklahoma City Thunder frá 2013 en hann var valinn tólfti í nýliðavalinu 2013. Steven Adams hefur vaxið og dafnað hjá Thunder en hann var með 8,0 stig, 6,7 fráköst og 1,1 varið skot að meðaltali í fyrra. Í fyrstu þremur leikjunum á þessu tímabili en Steven Adams með 13,0 stig og 9,7 fráköst að meðaltali. Þetta er mikil launahækkun fyrir Steven Adams sem er búinn að fá 10 milljónir dollara samanlagt fyrir fyrstu fjögur árin sín í deildinni. Hann tífaldar því launin sín með þessum samningi. Risastór fjölskylda Steven Adams ætti að geta notið góðs af nýja samningi kappans en hann er yngstur af átján systkinum sem faðir hans átti með fimm mismunandi konum. Ein systir hans er kúluvarparinn Valerie Adams sem er tvöfaldur Ólympíumeistari og fjórfaldur heimsmeistari. Bakvörðurinn Victor Oladipo fékk einnig nýjan samning hjá Oklahoma City Thunder en hann fær 84 milljónir dollara fyrir fjögur ár. Oklahoma City Thunder tryggði það með þessum samningum að hvorki Steven Adams né Victor Oladipo geta nú kannað markaðinn næsta sumar þegar gömlu samningar þeirra áttu að renna út.
NBA Mest lesið Þrír létust við fall úr stúku á fótboltaleik Fótbolti Ljósmyndari tekinn með valdi frá brúðkaupsgestum Fótbolti Fyrirmyndarnemanda og fótboltastjörnu vísað úr landi Fótbolti Instagram-drottningin mætir Íslandi á EM Fótbolti Sjáðu þegar Ægir fékk faðmlag frá Messi sem skoraði svo Fótbolti Uppgjörið: FH - Vestri 2-0 | Upp um fjögur eftir magnað mark og skalla Íslenski boltinn Arnar missti af ræsingu en vann: „Ha? Eru þau farin?“ Sport Lárus Orri stýrir ÍA út tímabilið Íslenski boltinn Reif Sæunni niður á hárinu Íslenski boltinn Lárus sagði leikmenn ÍA hætta og stjórnendur sofa á verðinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var upp á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur ÍR-ingar næla sér í leikmann úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar Hætta í miðju úrslitaeinvígi og enginn meistari krýndur Dóttirin talar íslensku: Í úrslitum NBA og meira tengd Íslandi en áður Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Semja við íslenska kjarnann í liði Íslandsmeistaranna Ótrúleg endurkoma og allt jafnt í úrslitaeinvíginu Hin stórstjarna Celtics þurfti einnig að fara undir hnífinn Áhorfið minnkaði um 55 prósent eftir að Caitlin Clark meiddist Íslandsmeistarinn getur orðið NBA meistari Sjá meira