Innlent

Tveggja tíma fundi Katrínar og Bjarna lokið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Katrín mætir í Ráðherrabústaðinn í morgun.
Katrín mætir í Ráðherrabústaðinn í morgun. vísir/anton brink
Fundi Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna og Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins lauk nú rétt fyrir klukkan 12. Hann stóð því í nærri tvo klukkutíma en rætt var við Katrínu í beinni útsendingu í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Þar sagði hún að þau Bjarni hefðu farið yfir stöðuna og þá aðallega þau málefni sem flokkarnir væru ósammála um. Þá sagði Katrín jafnframt að ekkert hefði breyst í þeirri afstöðu sinni að hennar fyrsti kostur varðandi nýja ríkisstjórn væri að mynda stjórn til vinstri. Þá bauð Bjarni Katrínu ekki til stjórnarmyndunarviðræðna.

Í samtali við Vísi segir Katrín að það hafi í raun ekkert komið út úr fundi þeirra Bjarna.

„Við fórum bara yfir stóru línurnar í þeim málum þar sem þessa flokka hefur greint á og það var nógu af taka. Við skýrðum þessar línur betur fyrir hvort öðru og áttum rökræður um þær,“ segir Katrín.

Hún segir að það hafi verið upphafleg sýn Vinstri grænna að mynda meirihlutastjórn til vinstri.

„Það er alveg ljóst að sú staða hefur þrengst en það er kannski ekkert nýtt í stöðunni annars.“

Bjarni hittir fulltrúa Pírata núna klukkan 13 og klukkan 15 koma þeir saman á fund hans þeir Óttarr Proppé formaður Bjartrar framtíðar og Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar. Seinastur til að mæta í Ráðherrabústaðinn er svo Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar.


Tengdar fréttir

Katrín mætt til fundar við Bjarna

Bjarni boðaði hana á fund sinn nú klukkan 10 en hann fundaði með Sigurði Inga Jóhannssyni formanni Framsóknarflokksins síðdegis í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×