Innlent

Bjarni segir málin verða að skýrast í þessari viku

Heimir Már Pétursson skrifar
Vísir/Eyþór
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er þeirrar skoðunar að best sé að mynda ríkisstjórn þriggja flokka. Hann hefur enn ekki hafið formlegar stjórnarmyndunarviðræður og útilokar ekki að hann geti myndað stjórn með Vinstri grænum.

Í dag eru sex dagar frá því Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands veitti Bjarna umboð til að mynda ríkisstjórn. Hann segist hafa rætt við formenn annarra flokka undanfarna daga og lagt mat á stöðuna með þingflokki Sjálfstæðismanna. Hann vilji að eiginlegar stjórnarmyndunarviðræður hefjist í þessari viku.

„Ég er þeirrar skoðunar að það væri best að vera með ekki nema þriggja flokka stjórn við þessar aðstæður og hef verið að ræða við menn um það,“ segir Bjarni.

Þá Viðreisn og Bjartra framtíð?

„Það er auðvitað einn möguleiki á meirihluta. Það liggur fyrir að hann er veikur sá meirihluti. En það eru fleiri möguleikar í stöðunni. En þetta ræðst eins og skiljanlegt er af málefnunum.“

Ertu að bera víurnar í Katrínu?

„Mér finnst eðlilegt að við tölum við Vinstri græn líka. Það var snemma ljóst og hefur legið lengi fyrir að það væri kannski mesta bilið að brúa þar.“

Hins vegar yrði það ríkisstjórn sem spannaði meiri pólitíska breidd.

„Og kannski við þær aðstæður ´sem eru uppi á kjörtímabilinu sem er að hefjast að þá myndi það ekki skaða,“ segir Bjarni.

Hefur hún eitthvað ámálgað það við þig að setjast í alvöru niður og fara að ræða samstarf?

„Ég hef ekki tekið málið á það stig gagnvart öðrum formönnum að segja nú hefjast hér stjórnarmyndarviðræður. Til þess hefur þurft að ræðast við oftar en einu sinni. Þetta fólk hefur allt þurft að melta stöðuna. Það þurfti aðeins að losa um spennuna sem fylgir kosningum. Það tók nokkra sólarhringa fannst mér. Ég fann það bara hjá sjálfum mér. Maður þurfti aðeins að komast úr kosningaham og fara að horfa inn í kjörtímabilið. Ég held að það kunni að hafa átt við um fleiri. Þannig að í þessari viku verður þetta að fara að skýrast. Hvort þessi samtöl séu grundvöllur fyrir því að hefja stjórnarmyndunarviðræður. Það verður að skýrast í þessari viku,“ sagði Bjarni Benediktsson eftir ríkisstjórnarfund í morgun.

Hann sagðist halda áfram að ræða við formenn annarra flokka í dag en vildi ekki gefa nákvæmlega upp hvar og hvenær þeir fundir ættu sér stað. En hann ræddi við forseta Íslands símleiðis á sunnudag og gaf ekki upp hvort hann myndi ræða nánar við hann í dag.


Tengdar fréttir

Bjarni fundaði með Óttari og Benedikt í kvöld

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins fundaði með Óttari Proppé formanni Bjartrar framtíðar og Benedikt Jóhannessyni formanni Viðreisnar fyrr í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×