Innlent

Bjarni Ben mætir fyrstur á fund Guðna á morgun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðni Th. Jóhannesson verður á fundum á morgun frá 10 til 17.
Guðni Th. Jóhannesson verður á fundum á morgun frá 10 til 17. Vísir/Eyþór


Í tilkynningu frá forsetaembættinu kemur fram að röðin á flokkunum verður í samræmi við þann fjölda þingmanna sem hver flokkur fékk kjörinn.

Röð þeirra má sjá hér að neðan.

Fundur forseta og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, verður klukkan 10. 

Fundur forseta og Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, verður klukkan 11. 

Fundur forseta og Birgittu Jónsdóttur, Smára McCarthy og Einars Aðalsteins Brynjólfssonar frá Pírötum verður klukkan 12.

Fundur forseta og Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins, verður klukkan 13. 

Fundur forseta og Benedikts Jóhannessonar, formanns Viðreisnar, verður klukkan 14. 

Fundur forseta og Óttars Proppé, formanns Bjartrar framtíðar, verður klukkan 15.

Fundur forseta og Oddnýjar Harðardóttur, formanns Samfylkingarinnar, verður klukkan 16.


 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×