Viðskipti innlent

Lárus Welding í tölvupósti í febrúar 2008: „Er ég rekinn“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lárus Welding í dómsal í gær.
Lárus Welding í dómsal í gær. vísir/gva
Lárus Welding fyrrverandi forstjóri Glitnis hafði ekki mestar áhyggjur af því að missa vinnuna í upphafi árs 2008 heldur af stöðu bankans og þeim vanda sem steðjaði að á mörkuðum.

Þetta kom fram undir lok skýrslutöku saksóknara yfir Lárusi við aðalmeðferð Aurum-málsins í gær þegar hann fór að spyrja hann aftur út í samskipti hans við Jón Ásgeir Jóhannesson, einn stærsta eiganda Glitnis á þeim sem Aurum-málið nær til.

 

Bæði Lárus og Jón Ásgeir eru ákærðir í málinu, sá fyrrnefndi fyrir umboðssvik og sá síðarnefndi fyrir hlutdeild í umboðssvikum, vegna sex milljarða króna láns Glitnis til FS38 í júlí 2008. Saksóknari hafði fyrr í skýrslutökunni spurt Lárus ítarlega út í samskipti hans og Jóns Ásgeirs en lesa má um það nánar hér. Undir lokin spurði hann svo hver hefði haft frumkvæði að því að ráða Lárus sem forstjóra Glitnis.

 

Sagði Lárus að það hefði verið Jón Sigurðsson en hann var forstjóri FL Group og varaformaður stjórnar Glitnis. Jón Ásgeir átti stóran hlut í FL Group í gegnum Baug og var stjórnarformaður félagsins frá í eitt ár, frá því í júní 2007 til júní 2008.

 

Fékk 300 milljónir fyrir að taka við starfinu

Saksóknari spurði Lárus sérstaklega hvort að Jón Ásgeir hefði ekki átt í neinum viðræðum við hann um að koma til starfa hjá Glitni áður en hann settist í forstjórastólinn á vormánuðum 2007.

Lárus sagðist ekki reka minni til þess og þá kvaðst hann hafa samið um kaup og kjör við Jón Sigurðsson en hann fékk 300 milljónir króna fyrir að taka við starfinu, eins og greint var frá í ársskýrslu Glitnis fyrir árið 2007.

 

Lárus var síðan spurður hver hefði haft forgöngu um að finna aðila í stjórn Glitnis. Hann gat ekki munað það sérstaklega en sagði það þó vera ljóst að það hefðu verið stærstu eigendurnir hefðu haft með það að gera en þar á meðal var FL Group.

 

Hann sagði jafnframt aðspurður að stærð eignarhluta FL Group og tengdra félaga hefði ekki haft nein áhrif á viðskipti félaganna hjá Glitni og að hluthafarnir hefðu ekki notið hagfelldra viðskipta í bankanum, heldur þvert á móti.

 

Gamlir vinir

Saksóknari bar síðan tölvupósta undir Lárus sem höfðu farið á milli hans og Jóns Ásgeirs í febrúar 2008. Í einum þeirra listar Jón Ásgeir upp nokkur mál sem hann virðist telja brýnt að klára en Lárus áframsendir þann póst á Jón Sigurðsson og skrifar:

 

„Er ég rekinn“

 

Lárus gerði ekki  mikið úr þessum tölvupósti í dag, sagði að hann og Jón Sigurðsson væru gamlir vinir og þá hafði hann heldur ekki mikið að segja um eftirfarandi póst frá Jóni Ásgeiri sem hann fékk líka í febrúar 2008.

Í heiti póstsins er vísað í að upplýsingarnar í honum séu komnar frá ríkisstjórninni og að Jón Ásgeir hafi þær frá fyrstu hendi. Átti ríkisstjórnin að hafa þetta um Glitni að segja samkvæmt pósti Jóns Ásgeirs:

 

„Að Glitnir banki einn íslenskra banka eigi í raun við vanda að glíma. Bankinn hafi veika forystu og litla hæfni til að takast á við þær erfiðu aðstæður sem ríki nú. Bankastjórinn virðist í sjokki og hafi ekki sterkt bakland innan bankans.“

 

Saksóknari spurði Lárus hvort þetta hafi verið vantraustsyfirlýsing á hans störf en hann sagðist ekki muna eftir póstinum. Þá kvaðst hann aðspurður ekki hafa haft áhyggjur af stöðu sinni innan bankans heldur af stöðu bankans sjálfs.


Tengdar fréttir

Tæplega fimmtíu vitni koma fyrir dóm við aðra aðalmeðferð Aurum-málsins

Aðalmeðferð í Aurum-málinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Í málinu eru þeir Lárus Welding fyrrverandi forstjóri Glitnis, Magnús Arnar Arngrímsson sem var framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, Jón Ásgeir Jóhannesson einn stærsti eigandi Glitnis og Bjarni Jóhannesson sem var viðskiptastjóri hjá Glitni ákærðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×