Októberspá Siggu Kling – Vatnsberi: Þú hefur ótrúlega útgeislun og nýtur þess að baða þig í sviðsljósinu 7. október 2016 09:00
Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Hamingjan er þar sem þú ert staddur. Þú átt það til að halda að þú þurfir mikið að leita að hamingjunni. Jafnvel fara til Indlands, standa þar uppi á fjalli á öðrum fæti, þegja í eina í viku og borða ekki neitt. Þar munir þú finna sjálfan þig og hamingjuna. Nei, hamingjan er í þessu smáa í kringum þig og þú átt að leyfa þér að slaka aðeins meira á og njóta stundarinnar. Þú hefur ótrúlega útgeislun og nýtur þess að baða þig í sviðsljósinu. Innra með þér býr líka hellisbúi sem vill fela sig. Þú þarft að sameina þetta tvennt. Þá er jafnvægi þínu náð. Í ástinni getur andað bæði kaldri og heitri orku því þú ert svo ástríðufullur. Einn daginn finnst þér allt vera að fara til fjandans en seinna sama dag er allt æðislegt. Þú ert með svo sterka póla sem við getum kallað yin og yang. Þegar þú blandar þessu saman, þá færðu fullkomnun. Þú hefur einlægan áhuga á því sem þú ert að gera og hefur meira að segja gaman af því að vinna og leysa ýmisleg mál. Það er varla hægt að segja að þér leiðist því það er alltaf komin ný hugsun í fallega heilabúið þitt. Þú gætir fundið fyrir því þegar hausta tekur að þú sért pínulítið áttavilltur, það er vegna þess að þú ert konungur vorsins og líður best í því þegar allt er að springa út og birtan er að koma. Þú skalt taka þessu tímabili rólega, safna orku og dekra við þig ef þú mögulega getur. Þú ert mest andlega þenkjandi merkið svo þessi tími gefur þér mest ef þú ferð í þannig mál. Það getur eflt þinn andlega huga að fara bara til dæmis í líkamsrækt, fara að hjóla, mála herbergið. Gera eitthvað sem er einfalt og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af. Það er allt að ganga vel þótt þú sért óþolinmóður. Hjá þér er að hefjast kafli sem ég veit ekki hvað mun verða langur en á þeim tíma mun líf þitt taka stakkaskiptum. Lífið mun fara fram úr þínum björtustu vonum og ég get næstum því sagt þér að fagna fyrirfram. Allt þetta sem þú ert búinn að ganga í gegnum mun nýtast þér til að framkvæma svo margt sem hefur áhrif á annað fólk og þá ert þú virkilega hamingjusamur. Þú ert svo smitandi týpa og þú ert smitberi hamingjunnar. Knús og kram, Sigga Kling Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum t0ga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum Áskorun Fleiri fréttir Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sjá meira