Þjónusta við fötluð börn skorin niður um helming vegna manneklu á frístundaheimilum Þórhildur Þorkelsdóttir. skrifar 21. september 2016 20:45
Frístundaþjónusta við fötluð börn í borginni hefur verið skert um fimmtíu prósent vegna manneklu á frístundaheimilum. Fjörutíu manns vantar til starfa á frístundaheimilið Guluhlíð, og á meðan ekki tekst að manna þau stöðugildi verða börnin send heim með tilheyrandi raski á rútínu þeirra og atvinnu foreldra. Forstöðumaður Guluhlíðar rekur ástandið til mikils uppgangs og atvinnutækifæra í samfélaginu. Laun við umönnunarstörf séu einfaldlega of lág til að hægt sé að sjá fyrir endann á ástandinu. „Þetta er í fyrsta skipti síðan ég tók við sem það hefur verið svona erfitt að manna. Þrátt fyrir að vera að reyna að þjónusta börnin eins og við getum þá erum við samt að keyra á undirmönnun,“ segir Margrét Halldórsdóttir forstöðumaður Guluhlíðar. Fyrir nokkrum vikum þurfti því að upplýsa foreldra um að þjónustan við börnin yrði skert verulega, eða um helming. „Börnin vilja langflest vera fimm daga vikunnar í Guluhlíð en við getum núna boðið þeim upp á tvo til þrjá daga. Við höfum engin önnur úrræði, engin önnur ráð og eðlilega eru foreldrarnir í mjög erfiðri stöðu.“Sjá má umfjöllun um málið í heild sinni í spilaranum að ofan.VÍSIR/SKJÁSKOTLaun fyrir fullt starf á frístundaheimili eru um 300 þúsund krónur. Á Guluhlíð eru flestir í fimmtíu prósent vinnu, margir samhliða háskólanámi. „Það er náttúrlega mikið framboð atvinnu í þjóðfélaginu og þá eru það ummönnunarstörf sem sitja á hakanum. Það eru ekki bara við sem erum í vondum málum, það eru fleiri frístundaheimili og leikskólar. Við þurfum bara svo mikið af fólki til að manna staðinn. Ef að við gætum borgað betri laun og fasta yfirvinnu myndi okkur örugglega ganga betur að fá fólk. Þetta eru ekki nægilega góð laun fyrir þá vinnu sem hér er unnin.“ Margrét segist ekki sjá fyrir endann á manneklunni. „Ekki eins og staðan er í dag nei. Það er allavega mjög langt í það. Miðað við hvernig staðan er og hvernig við erum að fá inn fólk þá sjáum við fram á að þetta verði mjög langt haust. Mjög langt. Því miður.“ Nánari umfjöllun um málið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Sjá meira