Athyglisverð bók á borði Höskuldar: „Þetta er jarðsprengjusvæði sem hann er á karlinn“ Birgir Olgeirsson skrifar 27. september 2016 15:31 Bókina Erfið samskipti mátti sjá á borði Höskuldar Þórhallssonar sem er á útleið sem þingmaður Framsóknarflokksins. Vísir/Ernir/Stefán „
Það er alltaf góðs viti að menn fletti upp og velti fyrir sér hvernig er best að takast á við þetta,“ segir vinnustaðasálfræðingurinn Eyþór Eðvarðsson um Höskuld Þórhallsson, þingmann Framsóknarflokksins, en við eldhúsdagsumræður á Alþingi í gær mátti sjá á borði Höskuldar bókina Erfið samskipti. Bókin er eftir þau Douglas Stone, Bruce Patton og Sheila Heen sem eru öll kennarar við Harvard-háskólann í Bandaríkjunum en hún er sögð henta þeim sem daglega reyna að sneiða hjá erfiðum samskiptum, bæði í einkalífi og starfi. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, deildi mynd af bókinni á Facebook í gærkvöldi þar sem hún sagði hana vera á borði sessunaut síns sem er Höskuldur:Jóhann Ásgrímsson þýddi bókina sem var gefin út af Veröld í fyrra en Jóhann ákvað ásamt útgefandanum að gefa öllum þingmönnum eintak af bókinni. Í umsögn um þessa sjálfshjálparbók er því haldið fram að margir forðist að vekja máls á því sem þeim finnst óþægilegt en slík samtöl séu hins vegar þau þýðingarmestu sem við eigum. „Í þessari áhugaverðu bók er að finna aðgengilegar og velígrundaðar leiðir til að taka þátt í erfiðum samtölum með það að markmiði að finna lausnir sem allir geta verið sáttir við,“ segir í umsögninni um þessa bók.Á útleið Höskuldur er á útleið sem þingmaður Framsóknarflokksins eftir slæmt gengi í prófkjöri flokksins í Norðausturkjördæmi þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, hlaut yfirburðakosningu. Sagði Höskuldur ástæðuna fyrir því vera að hann hefði ekki trú á framhaldinu hjá flokknum.Sjá einnig: Ekki allir sáttir við niðurstöðuna á kjördæmaþingi Framsóknarmanna í gær Vísir hefur ítrekað reynt að ná í Höskuld í dag en án árangurs. Líklega er ekki tilefni til að lesa of mikið í þá staðreynd að Höskuldur var með bókina á borði sínu í sal Alþingis í gær. Má þó velta fyrir sér hvort Höskuldur sé að undirbúa erfitt samtal áður en hann lætur af þingmennsku. Mikil ólga hefur verið í Framsóknarflokknum undanfarið vegna formannskjörsins á flokksþingi Framsóknar um komandi helgi þar sem Sigmundur Davíð og Sigurður Ingi Jóhannsson sækjast eftir að leiða flokkinn. Hefur Sigurður Ingi verið sakaður um svik og baktjaldamakk og ásakanir gengið á milli þeirra sem styðja Sigmund Davíð og þeirra sem styðja Sigurð Inga. Líkt og fyrr segir telur Eyþór vinnustaðasálfræðingur það vera góðs viti að menn lesi sér til og reyni að fræðast þegar þeir eru í erfiðum aðstæðum.Auðvelt að klúðra ágreiningi „Það er bara þannig að þegar menn lenda í ágreiningi þá er auðvelt að klúðra honum. Það er komin spenna í hlutina og tilfinningar og margt getur farið úrskeiðis. Það er góðs viti að fletta aðeins upp og staldra við velta fyrir sér hvaða skref á að taka. Það er auðveldast að vera reiður og sár en að geta tekið rétt skref í erfiðum aðstæðum er alltaf góðs viti,“ segir Eyþór. Höskuldur hefur sjálfur lýst stöðu sinni innan Framsóknarflokksins sem nokkuð erfiðri, honum hafi verið hafnað í prófkjöri og hann hafi hreinlega ekki trú á framhaldinu með Sigmund Davíð í fyrsta sætinu í sínu kjördæmi. „Þetta er jarðsprengjusvæði sem hann er á karlinn en það er ekkert auðveldara en að vera reiður og pirraður. Það að staldra við og fletta upp er bara gott skref og fær hann plús hjá mér fyrir það, svo lengi sem hann var ekki að lesa bókina á sama tíma og hann átti að vera að hlusta á ræðu þingmanna,“ segir Eyþór léttur í bragði. Hægt er að hlusta á þýðandann Jóhann Ásgrímsson tala um bókina hér fyrir neðan:
Tengdar fréttir Hvorki Sigurður Ingi né Sigmundur Davíð tala við eldhúsdagsumræður í kvöld Lilja Alfreðsdóttir talar fyrir framsókn í fyrstu umferð. 26. september 2016 15:26 Framsókn mætir í henglum til kosninga Blóðugur formannsslagur í vændum. Meirihluti þingflokks styður Sigurð Inga. 26. september 2016 17:12 Ekki allir sáttir við niðurstöðuna á kjördæmaþingi Framsóknarmanna í gær Þórunn Egilsdóttir gefur ekki upp hvort hún styðji formanninn til áframhaldandi setu 18. september 2016 12:30 Sigmundur Davíð: „Þorði ekki að vona að þetta yrði svona afgerandi“ Formaður Framsóknarflokksins segir að niðurstöður kjördæmaþings flokksins í Norðausturkjördæmi gefi sér aukinn kraft. 17. september 2016 14:39 Höskuldur tekur ekki sæti á lista Höskuldur Þórhallson, þingmaður Framsóknarflokksins, mun ekki taka sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. 17. september 2016 13:10 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fleiri fréttir Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Sjá meira
Hvorki Sigurður Ingi né Sigmundur Davíð tala við eldhúsdagsumræður í kvöld Lilja Alfreðsdóttir talar fyrir framsókn í fyrstu umferð. 26. september 2016 15:26
Framsókn mætir í henglum til kosninga Blóðugur formannsslagur í vændum. Meirihluti þingflokks styður Sigurð Inga. 26. september 2016 17:12
Ekki allir sáttir við niðurstöðuna á kjördæmaþingi Framsóknarmanna í gær Þórunn Egilsdóttir gefur ekki upp hvort hún styðji formanninn til áframhaldandi setu 18. september 2016 12:30
Sigmundur Davíð: „Þorði ekki að vona að þetta yrði svona afgerandi“ Formaður Framsóknarflokksins segir að niðurstöður kjördæmaþings flokksins í Norðausturkjördæmi gefi sér aukinn kraft. 17. september 2016 14:39
Höskuldur tekur ekki sæti á lista Höskuldur Þórhallson, þingmaður Framsóknarflokksins, mun ekki taka sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. 17. september 2016 13:10