Innlent

Magnús Ver fær 600 þúsund og ekki krónu meir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Magnús Ver fór fram á tíu milljónir króna í skaðabætur. Hann fær hins vegar 600 þúsund eftir að Hæstiréttur staðfesti dóminn úr héraði.
Magnús Ver fór fram á tíu milljónir króna í skaðabætur. Hann fær hins vegar 600 þúsund eftir að Hæstiréttur staðfesti dóminn úr héraði. Vísir/Vilhelm
Magnús Ver Magnússon, fyrrverandi sterkasti maður heims, fær 600 þúsund krónur í bætur frá ríkinu vegna ólögmætra aðgerða lögreglu, meðal annars hlerana og eftirfylgdar, vegna gruns um að hann væri viðriðinn stórfellt fíkniefnasmygl. Sá grunur reyndist ekki á rökum reistur og var rannsókn málsins hætt. 

Hæstiéttur kvað upp dóm sinn í dag og staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í fyrra þar sem Magnúsi voru dæmdar 600 þúsund krónur. Magnús Ver fór fram á tíu milljónir króna í miskabætur frá ríkinu auk dráttarvaxta og málskostnaðar í stefnu sinni á hendur ríkinu í héraði. Hélt hann kröfu sinni til streitu fyrir Hæstarétti.

Ríkið fór fram á verulega lækkaðar dómkröfur í héraði og að málskostnaður yrði felldur niður, en krafðist ekki sýknu. Magnús lýsti yfir vonbrigðum með dóminn í héraði á sínum tíma. Taldi hann léttvægan því hann hefði vonast til þess að dómurinn hefði fordæmisgildi.

Fylgdu honum eftir og hleruðu

Upphaf málsins má rekja til símtals sem Magnús Ver fékk frá lögreglunni þann 21. ágúst árið 2014. Í því símtali tilkynnti lögreglumaður Magnúsi Ver að lögreglan hefði beitt ýmsum rannsóknarúrræðum í rannsókn sem beindist að honum á sínum tíma, þar með talið að hlera síma hans, nota eftirfararbúnað í bifreið hans sem og að setja hlustunarbúnað í bifreið í umráðum Magnúsar.

Magnús sagði í samtali við Fréttablaðð að honum hefði verið verulega brugðið þegar hann komst á snoðir um aðgerðir lögreglu. Ekki síst þegar í ljós kom að sími dóttur hans hefði verið hleraður.

Magnús byggði bótakröfu sína á því að hafa verið rannsakaður af lögreglu í nærri þrjú ár en 1. október árið 2014 var lögmanni Magnúsar tilkynnt um að rannsókn málsins, þar sem Magnús hafði réttarstöðu grunaðs manns, væri lokið. 


Tengdar fréttir

Magnús Ver áfrýjar til Hæstaréttar

Magnús Ver Magnússon ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Hinn 16. október dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur ríkið til að greiða Magnúsi 600 þúsund krónur í miskabætur vegna rannsóknar lögreglu á meintri aðild hans að fíkniefnainnflutningi.

Þung byrði á fyrrverandi sterkasta manni heims

"Við vissum það alveg frá byrjun að við værum með unnið mál. Spurningin var bara hversu mikils virði eru mannréttindi og friðhelgi einkalífs einstaklings,“ segir fyrrverandi aflraunamaðurinn Magnús Ver Magnússon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×