Fótbolti

Væntingarnar eðlilega miklar eftir góðan árangur

Arnar Björnsson í Kænugarði skrifar
Heimir Hallgrímsson fylgist grannt með á æfingu strákanna okkar í Kænugarði en þetta verður hans fyrsti leikur sem aðalþjálfari án Lars.
Heimir Hallgrímsson fylgist grannt með á æfingu strákanna okkar í Kænugarði en þetta verður hans fyrsti leikur sem aðalþjálfari án Lars. vísir/Hafliði Breiðfjörð
Þegar franski dómarinn, Clément Turpin, flautar til leiks á Ólympíuleikvanginum í Kænugarði í kvöld hefst enn einn kaflinn í íslenskri knattspyrnusögu. Núna eru væntingarnar til strákanna okkar meiri en áður. Aldrei hefur íslenska knattspyrnulandsliðið lagt af stað í undankeppni EM eða HM með meiri væntingar og auðvitað ekki að ástæðulausu.

Frammistaða liðsins í Frakklandi í sumar er öllum kunn. Hér í Kiev vilja allir forvitnast meira um landsliðið okkar. Á löngum ferli mínum í íþróttafréttamennsku hef ég aldrei áður fundið fyrir eins miklum áhuga og nú. Ég hef verið á mörgum blaðamannafundum í útlöndum þar sem nánast aldrei var minnst á mótherjann.

En ævintýrið í Frakklandi breytti því svo sannarlega. Sama uppskriftin, karakter, vilji, agi og samheldni. Þeir blaðamenn sem ég hef talað við hér í Kiev eru skotnir í íslenska landsliðinu. Margir telja Íslendinga líklegri sigurvegara.

Nýi þjálfarinn, Shevchenko, talaði af virðingu um íslenska liðið á blaðamannafundi í gær. Shevchenko var góður í fótbolta en hvort hann getur þjálfað á eftir að koma í ljós. Þrátt fyrir glæsilegan feril sem knattspyrnumaður var ekki einhugur í Úkraínu um hann sem eftirmann Mykhaylo Fomenko. Shevchenko var í náðinni hjá forseta knattspyrnusambandsins og það réði úrslitum þegar kom að ráðningunni á þessari þjóðhetju.

Einn blaðamaður orðaði það við mig að óljóst væri hvort úkraínska landsliðið myndi taka þátt í næstu úrslitakeppni takist liðinu að komast þangað. Keppnin verður nefnilega haldin í Rússlandi 2018 og það eru litlir kærleikar með þessum þjóðum.

„Við ætlum að reyna að vinna og vonandi tekst það. Til þess þarf sömu uppskrift og við höfum notað að undanförnu, karakter, vilja, aga og allt það sem við höfum sett í leikina að undanförnu,“ sagði Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður, við Fréttablaðið fyrir leikinn.

Sá sem þetta skrifar var í Kiev 31. mars 1999 þegar Úkraína og Ísland gerðu 1-1 jafntefli. Fáir áttu von á öðru en að heimamenn myndu vinna öruggan sigur.

Lárus Orri Sigurðsson jafnaði metin og niðurstaðan varð 1-1 jafntefli. Núna er Ísland í 23. sæti á styrkleikalista FIFA en Úkraínumenn í 30. sæti. Kannski vegna þess eru blaðamenn hérna ekki jafn sigurvissir og þeir voru fyrir rúmum 17 árum.

Kolbeinn Sigþórsson sem hefur reynst okkur svo dýrmætur í undanförnum leikjum er meiddur og spilar ekki. Nú er tækifæri fyrir þann sem leysir hann af hólmi að skila fullkomnu verki í kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×