Innlent

Tíu í framboði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi

Atli Ísleifsson skrifar
Haraldur Benediktsson er þingmaður kjördæmisins og sækist eftir endurkjöri.
Haraldur Benediktsson er þingmaður kjördæmisins og sækist eftir endurkjöri. Vísir/Vilhelm
Kjörnefnd í Norðvesturkjördæmi hefur staðfest að tíu framboð hafi borist í prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna komandi þingkosninga.

Prófkjörið fer fram 3. september næstkomandi.

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, og Haraldur Benediktsson sitja nú á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og eru þingmenn kjördæmisins. Einar hafði áður greint frá því að hann hugðist ekki bjóða sig fram.

Á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins kemur fram að frambjóðendurnir í Norðvesturkjördæmi séu í stafrófsröð:

Aðalsteinn Arason

Gísli Elís Úlfarsson

Guðmundur Júlíusson

Hafdís Gunnarsdóttir

Haraldur Benediktsson

Jónas Þór Birgisson

Jónína Erna Arnardóttir

Steinþór Bragason

Teitur Björn Einarsson

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×