Telur stækkun Tennishallarinnar náttúruspjöll Ingvar Haraldsson skrifar 21. júlí 2016 07:00 Sverrir Óskarsson, bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í Kópavogi, þar sem umdeild viðbygging við Tennishöllina á að rísa. vísir/eyþór „
Mér finnst þetta ekki fara vel í dalnum. Núna langar fjöldann allan að byggja í dalnum. Það er erindi um skautahöll, það var einu sinni íþróttahús, íbúðabyggingar, skotsvæði og fleira,“ segir Sverrir Óskarsson, bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í Kópavogi, um fyrirhugaða viðbyggingu við Tennishöllina. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti breytingu að deiliskipulagi fyrir viðbygginguna á síðasta fundi sínum með sex greiddum atkvæðum gegn fimm. Sverrir segist vera því mótfallinn að byggja í Kópavogsdalnum, bærinn eigi aðrar lóðir sem starfsemin geti farið undir, til dæmis í efri byggðum bæjarins. „Kópavogsdalurinn er bara náttúruperla sem við eigum að láta óáreitta,“ segir Sverrir. Jónas Páll Björnsson, framkvæmdastjóri Tennishallarinnar, tekur ekki undir að verið sé að spilla náttúruperlu þar sem viðbyggingin eigi fyrst og fremst að rísa þar sem nú sé malarbílastæði austan megin við Tennishöllina.Þrír innivellir á landinu „Það hefur stundum verið talað um grænt svæði en þetta er fyrst og fremst svart svæði. Mér finnst að ef verið er að tala um grænt svæði þurfi það að vera grænt,“ segir Jónas. „Þetta svæði er ekki fallegt og þetta snýst í raun og veru um það að nýta þetta svæði frekar undir íþróttastarfsemi og uppbyggilega starfsemi eins og við erum með og ýta bílunum frekar upp og út úr dalnum,“ segir Jónas. Að sögn Jónasar hefði stækkun Tennishallarinnar miklar breytingar í för með sér fyrir tennisiðkendur hér á landi. Ekki sé hægt að spila tennis nema lítinn hluta ársins utandyra og nú séu aðeins þrír innivellir á landinu. „Það má bera þetta saman við að það væru bara þrjú borðtennisborð á landinu,“ útskýrir Jónas. Til stendur að byggja tvo innivelli í fullri stærð og tvo minni velli. Jónas vonast til að framkvæmdir geti hafist næsta vor fáist öll leyfi.Hér er fyrirhugað að viðbyggin rísi. Deildar meiningar eru um bygginguna.vísir/stefánSverrir telur fyrirhugaða stækkun einnig stangast á við skipulagslög þar sem viðbyggingin hafni að hluta inni á svæði sem flokkað sé opið svæði í aðalskipulagi. Sverrir lagði til að fengið yrði álit Skipulagsstofnunar áður en farið yrði með málið lengra. Meirihluti bæjarstjórnar féllst ekki á þá tillögu og afgreiddi málið með sex atkvæðum gegn fimm en meirihlutinn í málinu klofnaði. Þrír bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði með deiliskipulagsbreytingunni og tveir á móti. Theódóra S. Þorsteinsdóttir, hinn bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar sem er formaður bæjarráðs og skipulagsnefndar, greiddi atkvæði með tillögunni. „Það voru engin rök sem komu fram í þessu máli sem að mínu mati voru það sterk að banna ætti stækkun upp á einhverja tvo velli,“ segir Theódóra.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Uppfært: Að neðan má hlusta á viðtal við Sverri í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Fleiri fréttir Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Sjá meira