Nýjar andategundir verpa við Tjörnina í Reykjavík Atli Ísleifsson skrifar 23. júlí 2016 13:00 Við Reykjavíkurtjörn. Vísir/GVA
Tvær nýjar andategundir hafa í fyrsta sinn verpt við Tjörnina í Reykjavík frá því að athuganir hófust, en andavarp stendur nú yfir við tjörnina. Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að andavarp virðist ætla að vera með betra móti í ár eftir niðursveiflu síðustu ára.Rauðhöfðaandarkolla.Mynd/Reykjavíkurborg/Björn IngvarssonÞar segir að rauðhöfðaönd hafi sést með unga í Friðlandinu í Vatnsmýri og á stóru Tjörninni hafi sést tíguleg toppandarkolla með þrjá litla unga. „Ekki er vitað til þess að þessar tegundir hafa verpt áður á þessum slóðum. Urtönd verpti í fyrsta sinn í Vatnsmýrinni sumarið 2014 og hefur gert það árlega síðan þá. Gargönd hefur einnig verpt reglulega síðustu þrjú ár í Vatnsmýri eftir óreglulegt varp.“ Reglulegir varpfuglar Stokkönd, skúfönd og duggönd eru reglulegir varpfuglar við Reykjavíkurtjörn og virðist varp þeirra vera hægt og bítandi að rétta úr kútnum eftir mögur ár undanfarið. Engar æðarkollur verptu við Reykjavíkurtjörn í ár og segir að mögulegt sé að aðstæður fyrir varp æðarfugla við Reykjavíkurtjörn séu ekki lengur fýsilegar.Toppandarkolla.Mynd/Reykjavíkurborg/Björn Ingvarsson„Tjörnin er ekki lengur hálfsölt og þar sem æðarfuglar forðast almennt að verpa við ferskt vatn má álykta að erfitt mun reynast fyrir þá að verpa í miklum mæli. Mikill þróttur er í kríuvarpinu fjórða árið í röð og má nú fylgjast með fyrstu kríuungunum taka sig á flug í Friðlandinu í Vatnsmýri. Í Friðlandinu hafa auk kríu og áðurnefndra andategunda einnig sést verpa grágæs, hettumáfur, tjaldur, sandlóa, hrossagaukur og stelkur auk þess sem spörfuglar eins og skógarþröstur, þúfutittlingur, stari og maríuerla verpa í og við Friðlandið,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Fleiri fréttir Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Sjá meira