Borgarfulltrúar Framsóknar fara fram á að þing beiti sér varðandi lokun flugbrautar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 25. júlí 2016 13:12 Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina. Vísir/Pjetur
Borgarfulltrúar Framsóknar og flugvallarvina fara fram á að Alþingi beiti sér í málum er varða lokun neyðarbrautarinnar svokölluðu á Reykjavíkurflugvelli. Lokun brautarinnar marki upphafið að endalokum Reykjavíkurflugvallar. Isavia lokaði fyrr í mánuðinum NA/SV-brautinni á Reykjavíkurflugvelli, samkvæmt fyrirmælum frá innanríkisráðuneytinu í kjölfar dóms Hæstaréttar. Isavia sendi innanríkisráðuneytinu og Reykjavíkurborg staðfestingu þess efnis, og var bréf Isavia lagt fram á fundi borgarráðs á fimmtudag. Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, segir að mikilvægt sé að skoða málið frá öllum hliðum. Dómur Hæstaréttar hafi einungis varðað samkomulag sem Hanna Birna Kristjánsdóttir, þáverandi ráðherra flugmála, gerði við Reykjavíkurborg haustið 2013. Hann hafi ekkert með flugöryggi að gera. Guðfinna segir einungis eitt í stöðunni; að Alþingi beiti sér í málinu. „Við vonum að Alþingi vakni upp af svefninum og fari að gera eitthvað í þessu máli. Því það er bent á það í niðurstöðu héraðsdóms að það eru ákveðnar leiðir færar fyrir Alþingi, það getur bæði sett lög og ríki geta tekið eignarnámi ef það er í rauninni verið að skerða almannaheill. Það væri það réttasta í stöðunni núna að það væri að Alþingi myndi láta skoða það að skoða áhættumat að nýju, reikna út nothæfistuðulinn og síðan fara í það að skoða það hvort að þetta svæði yrði tekið eignarnámi,“ segir Guðfinna. Hún segir lokun flugbrautarinnar undanfara að lokun Reykjavíkurflugvallar og gagnrýnir það að borgarstjórn virði að vettugi undirskriftir 70 þúsund Íslendinga sem vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýri. „Með því að vera að þrengja alltaf að, það eru tvær brautir eftir núna, að taka þessa braut sem er mjög mikilvæg, þá sé ég ekki betur en að þetta sé upphafið að endalokunum, nema Alþingi grípi inn í þetta.“ Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallar eftir því í grein í Morgunblaðinu í dag að málefni flugvallarins verði tekin upp á sumarþingi.
Tengdar fréttir Hæstiréttur: Neyðarbrautin þarf að loka innan 16 vikna Íslenska ríkið þarf að loka NA-SV flugbraut Reykjavíkurflugvallar, hinni svokölluðu neyðarbraut, innan sextán vikna eða fyrir 29. september næstkomandi. 9. júní 2016 15:15 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Sjá meira
Hæstiréttur: Neyðarbrautin þarf að loka innan 16 vikna Íslenska ríkið þarf að loka NA-SV flugbraut Reykjavíkurflugvallar, hinni svokölluðu neyðarbraut, innan sextán vikna eða fyrir 29. september næstkomandi. 9. júní 2016 15:15