Dýrkeypt mygla hjá Orkuveitunni sögð stafa af innbyggðum göllum í húsinu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 27. júlí 2016 06:00 Skoða þarf undir alla klæðningu utanhúss í leit að myglu í miklum viðgerðum á höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur. Fréttablaðið/Stefán
Enn er ekki séð fyrir endann á umfangi skemmda vegna myglu í höfuðstöðvum Orkuveitunnar á Bæjarhálsi. Eins og fram hefur komið hófust viðgerðir á Orkuveituhúsinu í sumar. „Í haust uppgötvuðust rakaskemmdir sem myndað höfðu myglusvepp í útveggjum aðalhússins. Þá var ráðist í að taka sýni víðsvegar um húsið til að meta umfangið,“ sagði í frétt OR um miðjan júní. „Talið er að myglan stafi af ágöllum í húsinu sem suma hverja má rekja aftur að byggingartíma þess,“ segir Ólöf Snæhólm, upplýsingafulltrúi hjá Orkuveitunni. Húsið var tekið í notkun árið 2003. „Meðal annars heldur veðurkápa hússins ekki almennilega vatni í slagveðri. Umfang skemmdanna er ekki að fullu vitað ennþá, verið er að kortleggja þær á sama tíma og verið er að framkvæma nauðsynlegar lagfæringar. Fyrsti áfangi framkvæmdanna er austurhlið hússins, eftir á að skoða hvort ástæða sé til að opna hinar hliðarnar,“ segir Ólöf.Ólöf Snæhólm, upplýsingafulltrúi hjá Orkuveitu Reykjavíkur.Að sögn Ólafar ná viðgerðirnar til allra hæða í húsinu. Meðal annars þarf af taka upp alla klæðningu utan á byggingunni til að kanna það sem undir er. „Það er verið að taka þetta báðum megin frá; bæði innan- og utanhúss,“ segir Ólöf. Nokkurt rask fyrir starfsemina fylgi framkvæmdunum. „En það er reynt að hafa það eins lítið og hægt er.“ Þar sem enn er eftir að kortleggja allar skemmdir í byggingunni eru áætlanir um kostnað og tímaramma ekki nákvæmar. Aðeins er sagt að framkvæmdirnar geti teygst fram á haustið 2017 og að kostnaðurinn muni hlaupa á hundruðum milljóna króna. Enn er óljóst hver greiðir fyrir verkið. Foss fasteignafélag keypti bygginguna af OR á árinu 2013. Félagið er meðal annars í eigu lífeyrissjóða. Aðspurð segir Ólöf ekkert liggja fyrir alveg staðfest um það hvort myglan hafi haft áhrif á heilsu þeirra sem starfa í húsinu. „Það hafa verið kvartanir frá starfsfólki en þetta er náttúrlega eins og er með mygluna; það er mjög erfitt að setja fingur á það hvort þetta sé af hennar völdum eða einhvers annars. En við tökum öllum slíkum tilkynningum mjög alvarlega,“ útskýrir Ólöf Snæhólm. Í fyrrnefndri frétt OR var haft eftir Bjarna Bjarnasyni, forstjóra fyrirtækisins, að höfuðáhersla væri lögð á að tryggja starfsfólki heilsusamlegt vinnuumhverfi. „Nokkrir vinnufélaga okkar hafa fundið fyrir einkennum og við munum öll finna fyrir raskinu hér í húsinu sem fylgir framkvæmdunum næsta árið. Aðalatriðið er að ráða niðurlögum vandamálsins,“ var meðal annars haft eftir forstjóra OR.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Sjá meira