Unnu 262 milljónir: Hélt að eiginmaðurinn hefði komið upp falinni myndavél Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 28. júlí 2016 11:02 Vinningsmiðinn var keyptur á N1 í Kópavogi. Vísir/GETTY
Stærsti vinningurinn í Víkingalottó sem komið hefur til Íslands endar í höndum ungra hjóna sem hafa látið sig dreyma um að eignast rúmgott húsnæði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. „Það var sérstaklega ánægjulegt að taka á móti ungu hjónunum sem komu til okkar í Getspá í morgun með miðann góða úr Víkingalottóinu í gær en á honum var vinningur upp á 261.876.840 krónur sem er jafnframt stærsti happdrættisvinningur Íslandssögunnar,“ segir í tilkynningu. Miðinn var keyptur í N1 við Stórahjalla í Kópavogi líkt og fram kom í gær en það er „lottósjoppa“ ungu hjónanna. Þetta er í annað skiptið sem 1. vinningur í Víkingalottóinu kemur á miða sem er keyptur á þessum sölustað. Fyrra skiptið var í október 2012 en þá kom þar vinningur upp á rúmar 103 milljónir. „Eins og svo margir aðrir fengu þau sér bíltúr í veðurblíðunni í gær og keyrðu m.a. fram hjá fallegum húsum og létu sig dreyma um að geta keypt sér rúmbetra húsnæði en þau búa í lítilli íbúð í dag. Ekki gat þeim dottið í hug að nokkrum tímum seinna yrðu þau orðin margmilljónamæringar en það var ekki fyrr en um kvöldið að eiginmaðurinn fór yfir miðann og sá hvers kyns var,“ segir í tilkynningunni. „Hann kallaði á konuna en gat varla sagt henni fréttirnar út af stressi, hún trúði honum hins vegar ekki og leitaði um allt að falinni myndavél sem hún var alveg viss um að leyndist þarna einhversstaðar. Það var svo ekki mikið um nætursvefn, hugurinn á flugi og áhyggjur af því að tína miðanum, hann var settur í veski sem var geymt innan seilingar og gengið úr skugga um að útidyrahurðin væri ekki örugglega læst.“ Hjónin hyggjast fara í fjármálaráðgjöf á vegum Getspár en að öðru leyti gátu þau lítið tjáð sig um framtíðarhorfur. „Draumurinn um stærra húsnæði verður látinn rætast fljótlega.“
Tengdar fréttir Víkingalottó: Langstærsti happdrættisvinningur Íslandssögunnar Íslendingur fékk 262 milljónir. 27. júlí 2016 20:07 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Sjá meira
Víkingalottó: Langstærsti happdrættisvinningur Íslandssögunnar Íslendingur fékk 262 milljónir. 27. júlí 2016 20:07