Blaðsíða 19 í Draumalandinu varð að Kóreskum stórtónleikum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. júlí 2016 13:43 Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason hefur notið mikilla vinsælda undanfarinn áratug. Vísir/Hanna
Ásgeir Trausti, Ólafur Arnalds og Gus Gus munu troða upp á öðruvísi tónleikum í Silfurbergi í Hörpu annað kvöld. Engir miðar voru til sölu en eftirtektarsamir Íslendingar gátu gert tilraun til að verða sér út um miða í miðahappdrætti. Einhverjir fengu miða en væntanlega aðeins brotabrot af þeim sem sóttu um. Um er að ræða stórtónleika á vegum LG frá Suður-Kóreu en fyrirtækið er komið til Íslands til að kynna nýleg sjónvarpstæki sín, LG OLED TV. Silfurberg verður undir áhrifum íslenskra norðurljósa en hann verður skreyttur í bak og fyrir með sjónvarpsskjáum frá fyrirtækinu. Markmiðið, að því er segir á heimasíðu Hörpu, er að mynda norðurljósastemningu og má reikna með miklu sjónarspili. En þar með er ekki öll sagan sögð. Svo virðist sem hugmyndin að atburðinum hafi kviknað hjá fyrirtækinu í Suður-Kóreu eftir lestur á Draumalandinu eftir Andra Snæ Magnason, að minnsta kosti blaðsíðu nítján í þeirri vinsælu bók sem fagnar einmitt tíu ára afmæli sínu í ár. Á blaðsíðu 19 stendur: Slokkni ljós – kvikna stjörnur Á fallegu vetrarkvöldi er slökkt á öllum ljósum á Íslandi á milli klukkan 21:00 og 22:00Stjörnufræðingur lýsir himninumí beinni útsendingu. Allir fara út og njóta. Þessi orð urðu kveikjan að símtali fulltrúa LG til Andra Snæs sem fundaði með fyrirtækinu í mars vegna ímyndarherferðar LG. Það sem þau vilja koma á framfæri er hið algera myrkur sem þeim tekst að fá á skjáinn. „Svona getur ein blaðsíða í bók orðið að stórtónleikum á vegum LG í Kóreu 10 árum síðar,“ segir Andri Snær. Heimildarmynd var gerð eftir bókinni og má sjá kynningarstiklu hennar hér að neðan.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira