Menning

Upplifðu gamlar minningar, tilfinningar og drauma

Magnús Guðmundsson skrifar
Hluti þeirra listamanna sem bjóða upp á einstakt ferðalag í Snarfarahöfn á Listahátíðinni í Reykjavík.
Hluti þeirra listamanna sem bjóða upp á einstakt ferðalag í Snarfarahöfn á Listahátíðinni í Reykjavík. Visir/Hanna
Það fer bara einn áhorfandi í gegn í einu á átta mínútna fresti,“ segir Gunnar Hansson, framkvæmdastjóri listviðburðarins Phoenix Reykjavík Edition, sem er hluti af Listahátíðinni í Reykjavík. Viðburðurinn er haldinn í Snarfarahöfninni við Elliðavog og hefur verið lýst sem ferðalagi um landslag tilfinninga. Gesturinn er leiddur um höfnina, báta, tjöld og fjöruna og upplifir ógleymanlegt ferðalag.

„Þetta er braut sem farið er í gegnum og það tekur um níutíu mínútur fyrir hvern og einn gest. Hver ferð inniheldur átta stöðvar þar sem er staðnæmst í ákveðnu rými og á flestum stöðunum eru listamenn sem taka á móti viðkomandi. Þetta eru rými sem við erum búin að útbúa eins og t.d. yfirgefinn bíll, þrír bátar, kofi sem við smíðuðum úr alls konar drasli sem við fundum á hafnarsvæðinu en þetta er allt unnið út frá Snarfarahöfn. Málið er að sýningin lagar sig að þeim stað sem hún er á hverju sinni en allir staðirnir eiga það sameiginlegt að vera hafnarsvæði. Hún hefur verið í Árósum, Kaupmannahöfn og í hafnarbæ skammt frá Mílanó.

Frá vöggu til grafar

Gunnar heldur utan um sýninguna og segir að listamönnunum sem komi að verkefninu sé helst lýst með slettunni performansartistar. „Það er á aðeins gráu svæði hvort eigi að kalla þetta þátttökuleikhús eða þátttökulist. En það er samt mikilvægt að fólk átti sig á því að það þarf ekki að gera neitt sem það vill ekki gera. Það einfaldlega kemur inn í rými þar sem það upplifir mismunandi hluti og þessar upplifanir eru í raun mjög ólíkar.“

Heiti viðburðarins vísar í egypsku goðsagnaveruna Fönix, rauðan og gullinn fugl, sem endar lífdaga sína með því að brenna sjálfan sig en rísa svo upp endurfæddur úr öskunni. Gunnar segir að þau vilji þó að sumu leyti ekki segja of mikið um viðburðinn út frá nafninu. „Málið er að þetta skiptir ekki endilega svo miklu máli fyrir áhorfendur því að hver upplifir þetta á sinn hátt þó svo þetta skipti ákveðnu máli fyrir listamennina. En það er óneitanlega þarna tenging við að maður endurfæðist eins og fuglinn Fönix og þá vonandi í gegnum þessa reynslu. En verkið er soldið um þetta hringferli að fæðast, vaxa og þroskast og svo að deyja og endurfæðast og öll höfum við vængi.

Gunnar Hansson í einum áfangastaða ferðalagisns Phoenix Reykjavík Edition.Visir/Hanna
Lukkuhlutverk

Listamennirnir eru frá fimm löndum og það fyndna er að ég vissi ekkert almennilega út í hvað ég var að fara þegar ég réð mig í þetta en svo kom í ljós að þetta eru miklir listamenn og skemmtilegt verkefni. Hingað komu konur frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Ítalíu. Svo er íslensk listakona sem hefur unnið með þeim frá upphafi, Þóranna Björnsdóttir, en hún sér um hljóðmyndina í þessu. Áhorfendur eru með heyrnartól allan tímann og gps-stjórnað hljóð sem er alveg meiriháttar. En það var danska konan Mette Aakjær sem kom þessu af stað og fékk allt þetta í fólk í lið með sér og er svona vítamínsprautan í þessu en svo skapa þau þetta saman.

Sjálfur er ég svo í því lukkuhlutverki að senda fólk af stað og taka á móti því þegar það kemur til baka úr sínu ferðalagi og það er alveg æðislegt. Fólk kemur til baka í einhvers konar losti á mjög svo góðan hátt og það bara vill ekki fara aftur út í hraða samfélagsins, kveikja á símanum og allt þetta sem er að fara með okkur. Hver ferð tekur um níutíu mínútur og það hefur enginn haft á orði að þetta sé of langt en margir sagt að þeir hefðu viljað hafa þetta lengra því þetta var svo ánægjuleg lífsreynsla.

Það er svo gott að kúpla sig út úr hraðanum og upplifa hluti sem við tengjum við gamlar minningar, tilfinningar, drauma og hver og einn upplifir þetta á sinn hátt og það er mjög skemmtilegt að verða vitni að því.

Núna er veðurspáin góð og því tilvalið að koma í Snarfarahöfn og njóta þessarar fallegu upplifunar. En fyrst er að fara inn á midi.is því þar getur hver og einn bókað sína ferð á þeim brottfarartíma sem hentar viðkomandi. Það eru þrjátíu og átta brottfarir á hverjum degi þannig að það ættu allir að geta fundið sér stund til þess að koma og slökkva á símanum og fara með okkur í ferðalag um náttúruna, tilfinningar, minningar, gleði, hræðslu og drauma. Komdu með.“

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. júní 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×