Um leið og ég tók upp blýantinn kom nostalgían Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 4. júní 2016 14:00 Gabríela innan um nokkra af þeim skringilegu skúlptúrum sem hún bjó til fyrir sýninguna, en fengu svo ekki pláss. Vísir/Anton Brink
Sýningin sprettur út frá teiknimyndinni Innra líf heysátu sem ég gerði á síðasta ári með franska kvikmyndagerðarmanninum Pierre-Alain Giraud. Teikningarnar á veggjunum eru hluti af þeim sem ég gerði fyrir þá mynd,“ byrjar Gabríela Friðriksdóttir þegar hún er beðin að lýsa því hvernig innsetningin Innra líf heysátu í Gallery GAMMA í Garðastrætinu í Reykjavík varð til.Hún lýsir teikningunum nánar. „Þetta var í fyrsta skipti frá því ég var unglingur sem ég notaði blýantinn aftur til að móta bæði fínar og grófar línur. Ég tók svolítið unglingatæknina á þetta, blýanturinn kallaði á það. Það er talað um tjáningarraunsæi í listasögunni en þetta varð táningaraunsæi hjá mér. Um leið og ég tók upp blýantinn kom nostalgían yfir mig.“ Sýningin er hluti af dagskrá Listahátíðar og Gabríela segir Hönnu Styrmisdóttur, framkvæmdastjóra hennar, og sýningarstjórana Ara Alexander Ergis og Jón Proppé, hafa ákveðið að nota teiknimyndina frá síðasta ári og teikningarnar á sýningunni.„Þegar ég heimsótti galleríið og fór að velta hlutunum fyrir mér langaði mig að bæta einhverju við og í gegnum tíðina hef ég alltaf gert stofustærð af styttum öðru hverju.Kannski er það hluti af því að vera með svona barnalegan húmor í myndunum að mér fannst ég þurfa að vera með fígúrur sem gerðu innra líf heysátunnar enn persónulegra. Svo skúlptúrarnir eru alveg nýir.“ En var ekkert vandamál að nálgast heyið? „Nei, en það var samt dálítið krítískt, ég vissi ekkert hver ætti bagga núna eftir veturinn en hann Ólafur Hafliðason á Birnustöðum reddaði mér.Sáturnar úti eru líka dálítið skemmtilegt atriði, ég fékk aðstoð garðyrkjumeistara með það. Garðurinn er svo flottur og okkur fannst frábær hugmynd að hafa svona „sveit í bæ“ stemningu þar. Ég varð bæði glöð og hissa þegar fundust gamaldags hrífur með trétindum í Bauhaus. Svo var ég alltaf að hugsa um gömul net sem voru upplituð af sólinni eins og ég man eftir að vestan en fékk svarið „Hægan, hægan, Gabríela, þau eru öll komin á sjóminjasöfn!““ Gabríela er einmitt á förum vestur á firði þegar þetta viðtal fer fram. Hvað skyldi standa til þar? „Ég er að byrja á nýju verkefni með Valdimar Jóhannssyni tónlistarmanni og Ernu Ómarsdóttur dansara,“ upplýsir hún. „Það á að fara að filma fyrir vestan.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. júní 2016.
Listahátíð í Reykjavík Menning Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Fleiri fréttir Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira