Af gömlum körlum, spilaborgum og konum með typpi Þóranna K. Jónsdóttir skrifar 8. júní 2016 09:45 Í sjónvarpsþáttunum House of Cards rígheldur Underwood í völdin, valdanna vegna. Ekki vegna þess að hann hafi neitt gott til málanna að leggja, heldur bara til að vera á toppnum. Líf hans virðist snautt af öðrum tilgangi en þeim að drottna og deila. Svona eru líka gamlir íslenskir kóngar. Blindir á allan þann skaða sem þeir hafa valdið og sannfærðir um að ekki nokkur sála aðrir en þeir geti gert neitt gagn hvort sem það er á forsetastóli eða annars staðar. Mein veraldarinnar eru gamlir karlar í jakkafötum sem hlusta ekki á neitt nema valdabrjálæðið í hausnum á sér. Fjölbreytnin er engin og enginn annar kemst að borðinu. Og hvert hefur það leitt okkur? Heimurinn treystir enn á jarðefnaeldsneyti, ekki af því að það sé rökrétt á nokkurn hátt, heldur vegna þess að karlarnir í jakkafötunum græða á því. Auði heimsins er misskipt því að gamlir karlar í jakkafötum ríghalda í sitt og kunna ekki að deila frekar en smábörn sem eru að byrja á leikskóla. Þrátt fyrir að við eigum meira en nóg af matvælum til að fæða allan heiminn sveltur stór hluti mannkynsins, á meðan stór hluti þess deyr úr sjúkdómum sem eru engu að kenna öðru en ofáti og gróðafíkn sem leiðir til þess að matvæli verða óhollari og óhollari. Til þess að eiga séns á að komast áfram virðast konur þurfa að fara í jakkaföt (=dragt) og haga sér eins og þær séu líka með typpi. Deila gildum græðgi og valdafíknar. Falla inn í hópinn. Fjölbreytnin gæti nefnilega verið hættuleg og þá hrynur spilaborgin. Jafnréttisbaráttan er í krísu því það eru allir hættir að nenna að hlusta og hlutirnir færast aftur á bak. Ég legg til að við keyrum upp aðra baráttu – fjölbreytnibaráttuna. Fjölbreytnibaráttan leggur áherslu á kosti fjölbreytileikans í öllum þáttum lífsins. Sterk táknræn leið til að hefja fjölbreytileikann til vegs og virðingar væri að banna jakkaföt, því þau eru einkennisklæðnaður gömlu-karla-elítunnar. Gömlu karlanna sem vilja ráða heiminum og hafa satt best að segja drullað upp á bak. Hverjir eru með mér?! Vive la différence! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Í sjónvarpsþáttunum House of Cards rígheldur Underwood í völdin, valdanna vegna. Ekki vegna þess að hann hafi neitt gott til málanna að leggja, heldur bara til að vera á toppnum. Líf hans virðist snautt af öðrum tilgangi en þeim að drottna og deila. Svona eru líka gamlir íslenskir kóngar. Blindir á allan þann skaða sem þeir hafa valdið og sannfærðir um að ekki nokkur sála aðrir en þeir geti gert neitt gagn hvort sem það er á forsetastóli eða annars staðar. Mein veraldarinnar eru gamlir karlar í jakkafötum sem hlusta ekki á neitt nema valdabrjálæðið í hausnum á sér. Fjölbreytnin er engin og enginn annar kemst að borðinu. Og hvert hefur það leitt okkur? Heimurinn treystir enn á jarðefnaeldsneyti, ekki af því að það sé rökrétt á nokkurn hátt, heldur vegna þess að karlarnir í jakkafötunum græða á því. Auði heimsins er misskipt því að gamlir karlar í jakkafötum ríghalda í sitt og kunna ekki að deila frekar en smábörn sem eru að byrja á leikskóla. Þrátt fyrir að við eigum meira en nóg af matvælum til að fæða allan heiminn sveltur stór hluti mannkynsins, á meðan stór hluti þess deyr úr sjúkdómum sem eru engu að kenna öðru en ofáti og gróðafíkn sem leiðir til þess að matvæli verða óhollari og óhollari. Til þess að eiga séns á að komast áfram virðast konur þurfa að fara í jakkaföt (=dragt) og haga sér eins og þær séu líka með typpi. Deila gildum græðgi og valdafíknar. Falla inn í hópinn. Fjölbreytnin gæti nefnilega verið hættuleg og þá hrynur spilaborgin. Jafnréttisbaráttan er í krísu því það eru allir hættir að nenna að hlusta og hlutirnir færast aftur á bak. Ég legg til að við keyrum upp aðra baráttu – fjölbreytnibaráttuna. Fjölbreytnibaráttan leggur áherslu á kosti fjölbreytileikans í öllum þáttum lífsins. Sterk táknræn leið til að hefja fjölbreytileikann til vegs og virðingar væri að banna jakkaföt, því þau eru einkennisklæðnaður gömlu-karla-elítunnar. Gömlu karlanna sem vilja ráða heiminum og hafa satt best að segja drullað upp á bak. Hverjir eru með mér?! Vive la différence!
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar