Innlent

Líkamsárásin á Höfn í Hornafirði: Sonur réðst á föður sinn

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Höfn í Hornafirði.
Höfn í Hornafirði. Vísir/Pjetur
Uppkominn sonur réðst á föður sinn í heimahúsi á Höfn í Hornafirði í gærkvöldi og er hann nú í yfirheyrslu hjá lögreglu. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Greint var frá málinu í gær en lögreglan vinnur nú að rannsókn líkamsárásarinnar en faðirinn er á sjötugsaldri. Sonur hans veitti honum höfuðáverka sem þurfti að meðhöndla á sjúkrahúsi.

Vegna ófærðar landleiðina og flugaðstæðna var nauðsynlegt að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flutti manninn til Reykjavíkur.

Eins og áður segir sætir hinn grunaði nú yfirheyrslu hjá lögreglu. Áætlað er að í framhaldinu verði hann fluttur í fangelsið á Litla-Hrauni til afplánunar eldri mála.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×