Menning

Barokktónlist með ferskri framsetningu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigurður Halldórsson sellóleikari, Halldór Bjarki Arnarson semballeikari, Þóra Margrét Sveinsdóttir víóluleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir fiðluleikari, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-sópran og Arngeir Heiðar Hauksson, gítar- og lútuleikari.
Sigurður Halldórsson sellóleikari, Halldór Bjarki Arnarson semballeikari, Þóra Margrét Sveinsdóttir víóluleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir fiðluleikari, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-sópran og Arngeir Heiðar Hauksson, gítar- og lútuleikari. Mynd/Jóhanna Helga Þorkelsdóttir
„Við erum með sónötur, kantötu, sinfóníur og aríur eftir Purcell, La Guerre, Händel og Vivaldi, allt falleg og grípandi verk,“ segir Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzo-sópransöngkona í hinum nýstofnaða barokkhópi Symphonia Angelica sem kemur fram í Guðríðarkirkju í Grafarholti annað kvöld, fimmtudag, klukkan 19.30 á vegum Listahátíðar.

Aðalverk kvöldsins er kantatan La Lucrezia eftir Händel sem Sigríður Ósk segir dramatískt verk en kröftugt. „Ég söng þessa kantötu fyrir nokkrum árum í Kings Place í London með Classical Opera Company og langaði að taka hana aftur en til þess þurfti ég góðan hóp tónlistarmanna. Hún Sigríður Ella söngkona, kennari minn og vinkona benti mér á að tala við Sigurð Halldórsson sellóleikara sem bæði er í barokk- og nútímatónlist.

Hann smalaði saman fleiri hljóðfæraleikurum, blöndu af nýútskrifuðu fólki og reynsluboltum sem eru starfandi hér heima og erlendis. Til dæmis er einn lútuleikari, búsettur í London og spilar þar eldri músík. Flott að fá hann því atvinnumenn á lútu eru ekki á hverju strái. Þetta eru allt frábærir tónlistarmenn og ótrúlega gaman að fá að vinna með þeim. Við eigum eftir að gera meira saman.“

Sigríður Ósk segir smá tvist verða á tónleikunum annað kvöld. „Við erum með þá stefnu að vera með ferska nálgun á verkin, til dæmis með smá spuna á milli þeirra þannig að tónleikarnir verði ein heild,“ segir hún og ber lof á salinn. „Það er stórkostlegur hljómburður í Guðríðarkirkju,“ segir hún. „Enda eru stundum teknir upp geisladiskar þar.“

Tónleikarnir taka rúman klukkutíma. Miðar verða seldir við innganginn og líka á listahátíðarsíðunni http://www.listahatid.is/dagskra/2016/



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. 6. 2016






Fleiri fréttir

Sjá meira


×