Saga hinnar hugrökku Jebu Lóa Ingvarsdóttir skrifar 27. maí 2016 00:01 Þegar maður horfir í augu Jebu áttar maður sig ekki á hvað hún er búin að ganga í gegnum, en úr augum hennar skín gleði, lífskraftur og vilji. Sennilega væri hún ekki komin á þennan stað ef ekki væri fyrir þennan ótrúlega eldkraft sem í henni býr. Þessa sögu gætu margar ungar stúlkur í Bangladess og víðar sagt þér, en saga margra þeirra endar ekki vel. Saga Jebu gerir það hins vegar. Hún var 13 ára þegar hún var gift í burtu frá fjölskyldu sinni. Hún hafði verið gift í viku þegar barsmíðarnar hófust. Hún hugsaði strax og man sterkt eftir tilfinningunni um að hún yrði að komast í burtu. Hún talaði við móður sína og sagði henni frá barsmíðunum. Móðir hennar sagði, elsku barn, þú verður að harka af þér og láta þig hafa það að lifa við þessi litlu vandamál, framtíðin verður betri. Það er erfitt að átta sig á því og ímynda sér hvernig móður getur í ósköpunum talið barni sínu sé best borgið á þessa leið. Við hvaða aðstæður og hversu mikla fátækt býr móðir sem talar svona við barnið sitt? Mánuði eftir giftinguna varð hún ólétt og fæddi fyrri son sinn á sínu fjórtánda ári. Árin líða þar sem barsmíðar og nauðgun verður sorglegur hluti af daglegu lífi hennar. Jeba fékk ekki að halda áfram að ganga í skóla eftir að hún var gift, enda átti hún að sinna heimilinu. Þessi litla stúlka áttaði sig þó á mikilvægi menntunar og talaði við skólastjóra sem var góður vinur pabba hennar. Hann gaf henni leyfi til að koma og taka prófin tvisvar á ári ef hún myndi ná að læra heima í laumi. Hún nær að klára prófin og fær útskriftarskírteini. Á þessum slóðum voru slík skírteini ekki að finna í neinum gagnagrunni. Tengdafjölskyldan var farin að fylgjast náið með henni og fundu að lokum skírteinið, skólaskírteinið sem að hún ætlaði að nota til að komast á næsta skólastig. Skírteinið var brennt.Læddist út um miðja nótt Lengi skipulagði Jeba flótta sinn. Loks eina nótt árið 2011, eftir 19 ár af barsmíðum og nauðgunum, 49 saumspor og mörg brunasár, hljópst hún á brott. Þarna átti hún einn 18 ára strák og annan fimm ára. Sá eldri kæmi ekki með, hann var of hliðhollur föður sínum en hún var ekki viss hvort yngri sonur hennar ætti betri lífslíkur með henni eða hjá föðurfjölskyldu sinni. Hvað hefði hún honum að bjóða, á flótta? Hún ákveður, með trega, að skilja hann eftir og veðjar á að hún komist frekar ein lífs af. Hún var búin að safna sér fyrir lestarfari til Dakka, höfuðborgar Bangladess. Um miðja nótt þegar allir sofa, læðist hún út, tekur litlar eigur sínar og vefur þeim í sjalið sitt og læðist út. Hún hleypur af öllum lífsins sálarkröftum. Þá heyrir hún lágt kall og óttast að einhver sé á eftir henni. Lítur við og sér þá hvar fimm ára sonur hennar hleypur á eftir henni og kallar ”mamma, mamma, ekki fara án mín”. Hún faðmar hann þétt að sér, lítur til baka og sér engan annan á eftir þeim. Hún þurrkar tárin hans og þurrkar tárin sín, grípur svo í hendina á honum og áfram hlaupa þau saman. Í Dakka leitar hún uppi höfuðstöðvar mannúðarsamtaka sem hún þekkti til. Þessi samtök gátu ekki aðstoðað hana því þau óttuðust áhrif og völd tengdaföður hennar innan öfgasamtaka þar í landi. Hún kemst að lokum til sterkra mannúðarsamtaka, Nigera Korji. Þar er þeim veitt húsaskjól og henni boðin vinna. Þegar ég hitti Jebu er hún að vinna hjá Nigera Korji og les allar þær bækur sem hún kemst í tæri við. Hún les og fræðir sig um lög og réttindi. Í dag berst Jeba fyrir jafnrétti og mannréttindum fyrir alla. Við skulum gera það líka.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. maí 2016. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gerir háskólanám þig að grunnskólakennara? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Stríð skapar ekki frið Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Norska leiðin er fasismi Jón Frímann Jónsson Skoðun Kirkjuklukkum hringt Bjarni Karlsson Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Skoðun Um mýkt, menntun og von Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Ævinlega þakkláti flóttamaðurinn Zeljka Kristín Klobucar Skoðun Umsókn krefst ákvörðunar – ekki ákalls Erna Bjarnadóttir Skoðun Geldfiskur er málið Bubbi Morthens Skoðun Skoðun Skoðun Kirkjuklukkum hringt Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Gerir háskólanám þig að grunnskólakennara? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð skapar ekki frið Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Íslenska stóðhryssan og Evrópa Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvammsvirkjun – Skyldur ráðherra og réttur samfélagsins Eggert Valur Guðmundsson skrifar Skoðun Norska leiðin er fasismi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Um mýkt, menntun og von Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Höfum alla burði til þess Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Umsókn krefst ákvörðunar – ekki ákalls Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hjálp, barnið mitt spilar Roblox! Kristín Magnúsdóttir skrifar Skoðun Líkindi með guðstrú og djöflatrú Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Ævinlega þakkláti flóttamaðurinn Zeljka Kristín Klobucar skrifar Skoðun Vér vesalingar Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Leikrit Landsvirkjunar Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Svona eða hinsegin, hvert okkar verður næst? Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Reynisfjara og mannréttindasáttmáli Evrópu Róbert R. Spanó skrifar Skoðun Að hlúa að foreldrum: Forvörn sem skiptir máli Áróra Huld Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Þurfum við virkilega „leyniþjónustu”? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Byrjað á öfugum enda! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Væri ekki hlaupið út aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gervigreind fyrir alla — en fyrir hvern í raun? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hefur ítrekað hótað okkur áður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar Skoðun Bandaríkin voru alltaf vondi kallinn Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Erum við á leiðinni í hnífavesti? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Ákall til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að standa við gefin loforð Laura Sólveig Lefort Scheefer,Snorri Hallgrímsson,Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Ida Karólína Harris,Antonia Hamann,Julien Nayet-Pelletier skrifar Skoðun Kæfandi klámhögg sveitarstjóra Jón Trausti Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Ákall til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að standa við gefin loforð Laura Sólveig Lefort Scheefer,Snorri Hallgrímsson,Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Ida Karólína Harris,Antonia Hamann,Julien Nayet-Pelletier skrifar