Reyndi að villa á sér heimildir sem starfsmaður Landspítalans Jóhann Óli Eiðsson skrifar 26. apríl 2016 20:29 Konan þóttist vera starfsmaður Landspítalans. Tekið skal fram að starfsmaðurinn á myndinni er ekki konan sem um ræðir. vísir/vilhelm
Kona á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd í tveggja mánaða fangelsi fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot auk þess að hafa stolið munum af Landspítalanum við Hringbraut. Konan reyndi meðal annars að villa á sér heimildir og þóttist vera starfsmaður spítalans. Hún klæddist fatnaði ætluðum starfsmönnum, stal starfsmannaskilríkjum, masterlykli að spítalanum. Þá náði hún einnig að koma höndum yfir farsíma merktum spítalanum, eyrnasjá, skærum og skápalyklum starfsmanns. Konan játaði brot sín skýlaust fyrir dómi. Hún játaði einnig að hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis og kannabisefna þrátt fyrir að vera án ökuleyfis. Þá fundust í vörslu hennar 23 kannabisplöntur. Með brotum sínum rauf konan skilorð en í nóvember 2013 var hún dæmd í eins mánaðar fangelsi fyrir þjófnaðarbrot. Þá braust hún ítrekað inn í íbúð og hafði þaðan á brott eldavél, bakaraofn, blöndunartæki, baðkar, rennihurð og postulínshillu. Fullnustu refsingarinnar var frestað í tvö ár. Auk fangelsisrefsingarinnar voru kannabisplönturnar og búnaður til ræktunar þeirra gerðar upptækar. Þá var konan svipt ökuréttindum í tvö ár.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira