Fjórmenningarnir í Norrænusmyglinu neita allir sök Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 14. apríl 2016 15:30 Angelo Uyleman mætir í Héraðsdóm Reykjaness í dag. vísir/vilhelm
Fjórmenningarnir sem ákærðir eru fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning hingað til lands með Norrænu á síðasta ári neituðu allir sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Verði þeir fundnir sekir gætu þeir átt yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi. Um er að ræða tvo Íslendinga og tvo Hollendinga sem sakaðir eru um að hafa reynt að smygla um 23 kílóum af fíkniefnum hingað til lands í september í fyrra. Málið hefur vakið nokkra athygli því einn ákærðu, Hollendingurinn Angelo Uyleman, er greindarskertur. Hann sat í einangrun á Litla-Hrauni í átta vikur en sú vist var harðlega gagnrýnd vegna andlegrar fötlunar hans. Hann er ákærður fyrir að hafa staðið að innflutningnum, og samlandi hans fyrir að hafa undirbúið og aðstoðað Angelo við innflutninginn. Íslendingarnir tveir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, eru ákærðir fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað að hluta innflutninginn. Við þingfestinguna í dag fór verjandi Angelo fram á það að dómkvaddur matsmaður yrði fenginn til að meta sakhæfi skjólstæðings síns.Fíkniefnin falin í sérútbúnum geymsluhólfum Atburðarásinni er lýst nokkuð ítarlega í ákærunni. Angelo er sagður hafa flutt fíkniefnin til Íslands frá Hollandi, en þau voru falin í sérútbúnum geymsluhólfum undir framsætum og í miðjustokk bifreiðar sem hann ók til Danmerkur og þaðan með farþegaferjunni Norrænu. Í ákærunni segir að samlandi Angelo hafi séð um að bóka gistingu að bænum Stóra Knarrarnesi, og að þeir tveir hafi mælt sér mót þar í þeim tilgangi að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni. Hann hafi svo ætlað að koma fíkniefnunum áleiðis til annars Íslendingsins svo hægt yrði að koma þeim í söludreifingu.Notuðust við dulkóðuð-textaskilaboð Þá er Íslendingunum tveimur gefið að sök að hafa lagt á ráðin um innflutning fíkiefnanna. Kaupin hafi verið fjármögnuð með greiðslum í reiðufé inn á 30 Ikort upp á samtals níu milljónir króna. Þau hafi verið notuð til úttekta í hraðbönkum víða í Evrópu. Annar Íslendingurinn var handtekinn sama dag og Hollendingarnir, en þá var hann staddur skammt frá Stóra-Knarrarnesi. Fyrirhugað var að hann tæki við fíkniefnunum við Bláa lónið í Grindavík, að því er segir í ákærunni. Í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Íslendingunum frá því í nóvember segir að við húsleit hjá öðrum þeirra hafi fundist kassar utan af Blackberry-farsímum. Einn sími hafi verið notaður í samskiptum við erlenda samverkamenn og að við rannsókn lögreglu á símanum hafi komið í ljós að eingöngu var hægt að nota símann í þeim tilgangi að eiga dulkóðuð texta-samskipti. Atburðarásinni, eins og henni er lýst í ákæru, má sjá hér fyrir neðan. • Þriðjudagurinn 22. september: Angelo kemur til Íslands frá Danmörku með Norrænu. Hann keyrir frá Seyðisfirði til Hafnar í Hornafirði. • Miðvikudagurinn 23. september: Angelo ekur bifreiðinni frá Höfn í Hornafirði til höfuðborgarsvæðisins • Fimmtudagurinn 24. september: Angelo keyrir til Keflavíkur og að morgni næsta dags leggur hann bílnum í skammtímastæði við Keflavíkurflugvöll og heldur af landi brott. • Mánudagurinn 28. september: Angelo kemur aftur til Íslands með flugi frá Amsterdam. Hann keyrir bílnum að bænum Stóra Knarrarnesi þar sem fyrirhugað var að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni. Þar eru Angelo og samlandi hans handteknir. Fíkniefnin fundust síðar við leit. • Mánudagurinn 28. september: Annar Íslendingurinn er handtekinn skammt frá Stóra Knarrarnesi. Fyrirhugað var að hann tæki við fíkniefnunum.
Tengdar fréttir Systir Hreiðars Más um Angelo: „Einstaklega hlýr og góður drengur“ Angelo Uijleman, Hollendingur sem nú sætir farbanni vegna aðildar að umfangsmiklu fíkniefnasmygli, borðaði heima hjá Þórdísi Sigurðardóttur, systur Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, á jóladag. 28. desember 2015 14:24 Eignaðist svo góða vini á Kvíabryggju Angelo Uijleman hélt hann væri að fara í fría ævintýraferð til Íslands en var handtekinn fyrir grun um aðild að umfangsmiklu fíkniefnasmygli. Hann talar um þungbæra einangrun á Litla-Hrauni, bankamennina á Kvíabryggju og einmanaleg jól án fjölskyldunnar. 24. desember 2015 07:00 Angelo ákærður fyrir innflutninginn Greindarskerti Hollendingurinn hefur verið ákærður fyrir umfangsmikið fíkniefnasmygl. 9. apríl 2016 13:33 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja andlát starfsmanns Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Systir Hreiðars Más um Angelo: „Einstaklega hlýr og góður drengur“ Angelo Uijleman, Hollendingur sem nú sætir farbanni vegna aðildar að umfangsmiklu fíkniefnasmygli, borðaði heima hjá Þórdísi Sigurðardóttur, systur Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, á jóladag. 28. desember 2015 14:24
Eignaðist svo góða vini á Kvíabryggju Angelo Uijleman hélt hann væri að fara í fría ævintýraferð til Íslands en var handtekinn fyrir grun um aðild að umfangsmiklu fíkniefnasmygli. Hann talar um þungbæra einangrun á Litla-Hrauni, bankamennina á Kvíabryggju og einmanaleg jól án fjölskyldunnar. 24. desember 2015 07:00
Angelo ákærður fyrir innflutninginn Greindarskerti Hollendingurinn hefur verið ákærður fyrir umfangsmikið fíkniefnasmygl. 9. apríl 2016 13:33